Vantar þig góða og einfalda uppskrift að hollum morgunverði?
Hér er dásamleg uppskrift að ofnbökuðum ljúffengum hafragrauti með bláberjum og bönunum. Svo slær grauturinn líka í gegn hjá þeim sem yfirleitt eru ekkert sérstaklega hrifnir af hafragrauti.
Þetta er tilvalinn morgunmatur til að útbúa um helgar og njóta í rólegheitum með fjölskyldunni. Og svo má geyma hann fram í vikuna og hita upp.
Það sem þarf
1 msk kókosolía
2 bollar hafrar/tröllahafrar
1 tsk lyftiduft
2 tsk kanill
örlítið salt
¼ bolli gróft skornar pekanhnetur
½ bolli fersk bláber
1 stór niðurskorinn banani
1 stórt egg
1/3 bolli hlynsíróp
2 tsk vanilludropar
2 bollar mjólk/kókosmjólk/möndlumjólk
Aðferð
Hitið ofninn að 190 gráðum.
Smyrjið ferkantað form (um 20 cm) með kókosolíu.
Blandið höfrum, lyftidufti, kanil, salti og pekanhnetum saman í stórri skál. Setjið blönduna síðan í bökunarformið.
Raðið bláberjum og bönunum ofan á blönduna.
Takið þá egg, síróp, vanilludropa og kókosmjólk og blandið vel saman í lítilli skál.
Hellið þessari blöndu síðan rólega yfir hafrablönduna og ávextina.
Setjið inn í ofn og bakið í 30 til 35 mínútur, eða þar til grauturinn er orðinn gylltur að lit.
Takið þá út úr ofninum og leyfið að kólna aðeins áður en grauturinn er borinn fram.
Grautinn má síðan geyma í ísskáp í 3 daga. Og þá er gott að hita hann aðeins upp og jafnvel bæta smá mjólk við.
Njótið!