Með hærri aldri eiga ýmsar breytingar sér stað í líkama okkar og á það bæði við karla og konur. Til að takast á við líkamlegar breytingar er mikilvægt að huga að réttri hreyfingu.
Besta lyfið sem við eigum kost á
Ganga er ein besta hreyfing sem völ er á og hana er hægt að stunda næstum hvar sem er og hvenær sem er. Og svo kostar það ekkert að ganga. Gangan getur gert þér afar gott og haft jákvæð áhrif á marga kvilla sem angra til dæmis konur á breytingaskeiði – og auk þess eitt og annað sem fylgir hærri aldri beggja kynja.
Hippókrates hefur líklega hitt naglann á höfuðið þegar hann sagði um 400 árum fyrir Krist að gangan væri besta lyfið sem mannfólkið ætti kost á. Enn þann dag í dag á þetta við og styðja auknar rannsóknir við þessa kenningu hans.
Hér eru nokkur mikilvæg atriði sem gangan hefur áhrif á
Gangan styrkir beinin og hafa rannsóknir sýnt fram á að þær konur sem ganga reglulega eftir tíðahvörfin fá síður beinþynningu.
Gangan styrkir hjartað.
Gangan styrkir líkamann.
Gangan gerir heilanum gott og eru konur sem ganga í eina og hálfa klukkustund á viku með töluvert betra minni en þær sem ekki ganga. Þá eiga þær auðveldara með samhæfðar hreyfingar.
Gangan getur dregið úr líkum á því að fá brjósta- og ristilkrabbamein.
Gangan léttir lundina og getur haft jákvæð áhrif á þunglyndi.
Gangan er talin geta spornað við Alzheimer.
Kostir þess að ganga eru ótvíræðir
Að ganga í 30 mínútur á dag helst ekki sjaldnar en fimm sinnum í viku þykir hafa umtalsverð áhrif á það hvernig við eldumst.
Þetta er bara ekki spurning!