Það er alltaf svo miklu betra að gera sína eigin sósu heldur en að kaupa tilbúna, og það á líka við sósur á hamborgara.
Ef þú hefur ekki prófað hina einu sönnu Big Mac sósu á borgarann þinn þá er sko kominn tími til.
Hún Svava á Ljúfmeti og lekkerheit hrærði á dögunum í eina svona Big Mac sósu og hún þótti alveg svakalega góð.
Það sem þarf
- 1 dl majónes (Hellmanns)
- 2 msk fínhökkuð sýrð gúrka
- 1 msk gult sinnep
- 1 tsk hvítvínsedik
- 1 tsk hvítlaukskrydd
- 1 tsk laukkrydd
- 1 tsk paprikukrydd
Aðferð
Blandið öllu saman.
Tilbúið!
Og þá er bara að skella borgurunum á grillið.