Þessi afar algengu mistök láta þig eldast hraðar en nauðsynlegt er

Það er eitt og annað í þessu lífi sem lætur okkur eldast hraðar en nauðsynlegt er og þótt maður telji sig lifa nokkuð heilbrigðu lífi er samt ýmislegt sem maður áttar sig ekki á að lætur mann eldast hraðar.

Það eru nefnilega ekki bara reykingar sem fara illa með húðina heldur svo margt annað.

Hér er listi yfir níu atriði sem láta okkur eldast hraðar

1. Að sofa ekki nóg

Það vita flestir að það að fá ekki nægan svefn er hættulegt heilsunni og getur jafnvel stuðlað að sjúkdómum seinna á lífsleiðinni. En ekki vita allir að of lítill svefn getur haft alvarleg áhrif á húðina og látið þig líta út fyrir að vera mun eldri en þú ert.

Rannsóknir sýna fram á að húð þeirra sem sofa ekki nóg og/eða ekki nógu vel eldist hraðar, hrukkur aukast, teygjanleiki minnkar og litarhaftið verður ójafnt. Fyrir þá sem eru gjarnir á að fá bólur skiptir svefninn enn meira máli.

Mikilvægt er að fá 7 til 8 tíma svefn á hverri nóttu til að tryggja unglegri húð.

2. Að neyta of mikils sykurs

Sykur er ekki aðeins slæmur fyrir mittismálið og heilsuna heldur einnig fyrir húðina. Of mikil sykurneysla getur svipt húðina ljóma.

Samkvæmt rannsóknum líta þeir einstaklingar út fyrir að vera eldri sem eru með hátt magn blóðsykurs í líkamanum. Þá rænir of mikil sykurneysla þig orku og þegar þér líður alltaf eins og þú sért þreytt/ur þá líturðu út fyrir að vera eldri en þú ert.

3. Að vera sífellt stressaður

Ef þú ert stöðugt að stressa þig á öllu mögulegu og ómögulegu þarftu að fara að slaka á. Krónískt stress rænir þig góðum svefni og lætur þig þar af leiðandi eldast hraðar. Talið er þeir sem eru allt of stressaðir líti út fyrir að vera tíu árum eldri en þeir eru.

Hættu að stressa þig á þvottinum, matnum, unglingunum og öllu hinu – því þú breytir engu með stressi. Og ef það er starfið sem stressar þig upp þarftu kannski að tileinka þér einhverja tækni til að höndla það betur, t.d. með hugleiðslu eða öðru slíku.

4. Stöðugir megrunarkúrar

Ef þú ert sífellt að prófa nýja undrakúra sem eiga að losa þig við kílóin á stuttum tíma þá ættirðu að endurskoða það.

Margir megrunarkúrar útiloka alla fitu úr fæðunni, en fitan er húðinni mikilvæg. Þá eru aðrir kúrar þar sem ákveðnar fæðutegundir eru teknar út og við það getur húðin orðið af mikilvægum efnum eins og t.d. andoxunarefnum.

5. Of mikill andlits- og handþvottur

Auðvitað er mikilvægt að þrífa andlit og hendur vel en of mikið af því góða getur gert skaða. Húðin þornar við of mikinn þvott sem leiðir til þess að hún eldist fyrr.

Gæta þarf þess að nota ekki of sterk efni á húðina og venja sig á að nota nærandi krem á eftir.

Þetta á líka við um hendurnar. En það vill einmitt gjarnan gleymast að húðin á höndunum kemur oft upp um aldurinn – og ef ekki er hugsað nógu vel um húðina á höndunum þá gætir þú litið út fyrir að vera eldri en þú ert.

6. Að sitja of mikið

Stór hluti fólks situr of mikið. Það er setið við skrifborðið í vinnunni, setið í bílnum og fyrir framan sjónvarpið á kvöldin. En öll þessi kyrrseta gerir húðinni skaða, og öll vitum við hvað kyrrsetan gerir heilsunni.

Nýleg rannsókn sýnir fram á að konur á aldrinum 64 til 95 sem sitja í meira en 10 tíma á dag líta út fyrir að vera átta árum eldri en konur sem eru virkari.

Það er því afar mikilvægt að hreyfa sig – og 30 mínútur á dag gera heilan helling fyrir þig.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

7. Lítið eða ekkert kynlíf

Hér er komin enn ein góð ástæða fyrir því að stunda kynlíf – en talið er það að stunda kynlíf reglulega láti fólk líta út fyrir að vera fimm til sjö árum yngri.

Með kynlífi losnar um gleðihormónið endorfin í líkamanum en það leiðir til betri svefns og losar um stress. Þá telst kynlíf líka til hreyfingar, sem gerir húðinni gott.

8. Að nota ekki sólarvörn

Sólarvörn á ekki aðeins að nota til varnar bruna heldur til að halda húðinni vel nærðri í sólinni. Því eins og flestir vita þá þurrkar sólin húðina – og þurr húð eldist fyrr.

En það er ekki nóg að nota sólarvörnina eingöngu þegar farið er á ströndina. Rannsóknir sýna fram á að þeir sem nota sólarvörn við daglega iðju að minnsta kosti þrisvar til fjórum sinnum í viku eru ólíklegri til að sjá merki öldrunar fyrr en eðlilegt er á húð sinni.

Í dag má fá rakakrem, lituð dagkrem og meik með sólarvörn í.

9. Að æfa of mikið

Þótt hreyfingin sé góð bæði fyrir líkama og sál (og auðvitað húðina) þá má öllu ofgera.

Of miklar og strangar æfingar geta tekið sinn toll og látið þig eldast hraðar en nauðsynlegt er. Gefðu líkamanum tækifæri til að endurnæra sig á milli æfinga og umfram allt; hlustaðu á líkamann og taktu frídaga þegar hann þarf á því að halda.

Heimildir – cheatsheet

Deildu þessari grein á
  • Nýtt
  • Heilsa og útlit
  • Lífið og lífsstíll
  • Matur og drykkur
  • Menning
  • Myndbönd

Það er gott að kyssa – En veistu hvað kossaflensið getur gert?

Hvað jafnast á við kossaflens og kelerí? Ekkert að mínu mati, þrátt...

Einstaklega einfaldur og fljótlegur eftirréttur

Þegar strákarnir mínir voru litlir bjó ég stundum til eftirrétt handa...

Þessir 9 hlutir eru það besta í lífinu – Og þeir kosta ekki krónu

Öll vitum við að tilvera okkar hér á jörðinni er takmörkuð, en allt...

Þrjár einfaldar hátíðargreiðslur fyrir stutt hár

Þrátt fyrir að hár þitt sé frekar stutt er ekki þar með sagt að...

Þessi safi er alveg hreint frábær við uppþembu og bólgum í líkamanum

Þrátt fyrir að vatnsmelónur séu 92% vatn innihalda þær engu að...

Japönsk vatnsmeðferð sem talin er allra meina bót

Þessi vatnsmeðferð er alveg sáraeinföld, en hún er kennd við Japan...

Frábært trix til að steikja beikon á pönnu – Án alls sóðaskapsins

  Ef þér finnst beikon gott og færð aldrei nóg af því… en...

Bíddu, er hún 65 ára? Og hvert er leyndarmálið?

Leikkonan Dana Delany lítur alveg ótrúlega vel út miðað við aldur....

Þrjár einfaldar hátíðargreiðslur fyrir stutt hár

Þrátt fyrir að hár þitt sé frekar stutt er ekki þar með sagt að...

Japönsk vatnsmeðferð sem talin er allra meina bót

Þessi vatnsmeðferð er alveg sáraeinföld, en hún er kennd við Japan...

Vissir þú að ananas hefur lækningamátt?

Ananas er stútfullur af góðum næringarefnum og þá meinum við...

Þessi greiðsla tekur fimm mínútur – Ótrúlega flott

  Já takk, við erum sko meira en til í þessa flottu greiðslu sem...

Konur hrjóta líka – Þótt þær haldi öðru fram

Konur um og yfir fimmtugt kvarta frekar en karlar á sama aldri yfir...

Afar mikilvægt fyrir allar konur – og þá sérstaklega konur yfir fertugt

Mælt er með því að hver kona skoði sjálf og þreifi brjóst sín í...

Hættulegra að sofa of mikið en of lítið

Það greinilega borgar sig ekki miðað við nýlega rannsókn að snúa...

Höfuðverkur og konur yfir fertugt – Hver er ástæðan fyrir höfuðverknum?

Afar algengt er að konur yfir fertugt þjáist af höfuðverk sem rekja má...

Það er gott að kyssa – En veistu hvað kossaflensið getur gert?

Hvað jafnast á við kossaflens og kelerí? Ekkert að mínu mati, þrátt...

Þessir 9 hlutir eru það besta í lífinu – Og þeir kosta ekki krónu

Öll vitum við að tilvera okkar hér á jörðinni er takmörkuð, en allt...

Bíddu, er hún 65 ára? Og hvert er leyndarmálið?

Leikkonan Dana Delany lítur alveg ótrúlega vel út miðað við aldur....

Eyðir þú oft peningum í óþarfa? – Hér eru ráð við því

Það er ótrúlegt hvað við getum stundum verið dugleg að eyða...

Snilldar ráð til að gera háu hælana þægilegri

Hvaða kona elskar ekki skó og háa hæla? Þrátt fyrir að það geti...

Karlmenn eru svo miklu mýkri en margar konur halda

Alveg eins og karlmenn eiga oft erfitt með að skilja okkur konur þá...

Lætur þú þarfir annarra alltaf ganga fyrir?

Ert þú týpan sem lætur alltaf aðra ganga fyrir en situr svo sjálf á...

Eru fimmtugar konur í dag eins og fertugar hér áður?

Íslenskar konur eiga góða möguleika á því að ná háum aldri og við...

Einstaklega einfaldur og fljótlegur eftirréttur

Þegar strákarnir mínir voru litlir bjó ég stundum til eftirrétt handa...

Þessi safi er alveg hreint frábær við uppþembu og bólgum í líkamanum

Þrátt fyrir að vatnsmelónur séu 92% vatn innihalda þær engu að...

Frábært trix til að steikja beikon á pönnu – Án alls sóðaskapsins

  Ef þér finnst beikon gott og færð aldrei nóg af því… en...

Bakaðar og gómsætar pepperoni pizza kartöflur

Fáir slá hendinni á móti brakandi pepperoni pizzu, eða bakaðri...

Gómsætur bakaður Brie í áramótaveisluna

Bakaðir ostar eru í miklu uppáhaldi hjá mér og geri ég þannig...

Dásamlegt jóla Tiramisu úr smiðju Jamie Oliver

Það er algjörlega ómissandi að fá góðan eftirrétt um jólin. Hvort...

Æðislegir snickersbitar á aðventu

Nú á aðventu er smákökubakstur á fullu á mörgum heimilum. Margir...

Gómsætar jólalegar súkkulaðikökur með Bismark súkkulaði

Þær gerast nú varla mikið jólalegri smákökurnar… hvað þá...

Þetta eru tuttugu rómantískustu bíómyndir allra tíma

Hvað er meira kósý en að kúra uppi í sófa þegar kalt er úti og...

Tíu frábærar bíómyndir sem fá þig til að gleyma lífsins áhyggjum

Þegar veðrið er ekki upp á sitt besta, maður er jafnvel lokaður inni...

Þetta eru eftirminnilegustu kossar allra tíma

Kossar í bíómyndum verða gjarnan eftirminnilegir – og oft eru...

Jólalög og ljúfir tónar á Þorláksmessu í Hörpu – Frítt inn og allir velkomnir

  Margir leggja leið sína í miðbæ Reykjavíkur á Þorláksmessu...

Mahler og Mussorgsky á Óperudögum í Hannesarholti

  Þau Aron Axel Cortes barítónsöngvari og Hrönn Þráinsdóttir...

Skelltu þér á ókeypis tónleika Óperunnar í Hörpu – Notalegt í hádeginu

Íslenska óperan býður upp á í vetur, eins og undanfarna vetur,...

Svona hefurðu aldrei heyrt lagið Jolene áður… frábær A capella flutningur

Dolly Parton er afskaplega hæfileikarík og þá ekki eingöngu sem...

Gætir þú lifað án tónlistar?

Hvernig væri tilveran án tónlistar? Tónlist er stór hluti af menningu...

Langt leidd af Alzheimer en kemur alltaf tilbaka þegar hún syngur

Það er afar sárt fyrir aðstandendur Alzheimers-sjúklinga að horfa upp...

Er eitthvað krúttlegra en þetta? – Gleðipilla dagsins!

Lítil börn og hundar eru auðvitað bara dásemd. Og þetta litla krútt...

Faðir brúðarinnar neitaði að halda ræðu og gerði þetta í staðinn

Faðir brúðarinnar ákvað að halda ekki hefðbundna ræðu í...

Tónlist gerir kraftaverk fyrir Alzheimer-sjúklinga – Sjáðu myndbandið

Þetta fallega spænska myndband sýnir hversu stórkostleg áhrif tónlist...

85 ára afi stelur senunni í brúðkaupi í hlutverki blómastúlku

Þetta myndband bræðir mann alveg. En þessi 85 ára afi stal senunni í...

Þessi litla ódýra jólaauglýsing hefur gjörsamlega brætt netheima

Það á oftar en ekki við að minna er meira og það sannar þessi litla...

Dáleiddu salinn og dómarana með töfrandi hreyfingum – Alveg magnað

Þessi hópur stúlkna frá Líbanon, 31 talsins, eru keppendur í nýjustu...

Stóð uppi sem sigurvegari 89 ára gamall – Aldrei of seint að láta draumana rætast

Við höfum lengi talað fyrir því að maður er aldrei, nei ALDREI, of...