Er þetta ekki eitthvað fyrir helgina?
Þunnur og stökkur botn úr saltstöngum, mjúk brúnka sem er örlítið blaut í sér og mjúk karamella með sjávarsalti yfir.
Svo ólýsanlega gott!
Það er hún Svava á Ljúfmeti og lekkerheit sem deilir hér með okkur uppskriftinni að þessu góðgæti.
Það sem þarf
Botn
- 125 g saltstangir
- 75 g smjör, brætt
- 2 tsk sykur
Kaka
- 400 g suðusúkkulaði (eða 70% súkkulaði)
- 175 g smjör
- 5 egg
- 4 ½ dl púðursykur
- 1 tsk vanillusykur
- 1 tsk salt
- 1 ½ dl hveiti (90 g)
Karamella
- 50 g smjör
- 1 ½ dl sykur
- 1 ½ dl rjómi
- 3/4 dl sýróp
- 2 tsk maldonsalt
Aðferð
Hitið ofn í 175°.
Byrjið á botninum. Vinnið saltstangirnar, smjör og sykur saman í matvinnsluvél í grófa mylsnu.
Þrýstið mylsnunni í botninn á eldföstu formi í stærðinni 25 x 30 cm, sem hefur verið klætt bökunarpappír.
Bakið í miðjum ofni í 6 mínútur. Takið út og látið kólna.
Kakan: Grófhakkið súkkulaðið og bræðið ásamt smjöri í skál yfir vatnsbaði. Leggið til hliðar og látið kólna aðeins.
Hrærið egg, púðursykur, vanillusykur og salt saman þar til blandan er orðin létt í sér.
Bætið súkkulaðismjörinu saman við á meðan hrært er í blöndunni. Sigtið hveitið í deigið og hrærið saman í slétt deig.
Hellið deiginu yfir botninn og bakið í miðjum ofni í 30-35 mínútur. Kakan á að vera aðeins blaut í sér. Látið kökuna kólna áður en karamellan er sett yfir.
Karamella: Setjið smjör, sykur, rjóma og sýróp í pott. Látið suðuna koma upp og sjóðið á miðlungshita þar til 120° er náð. Hrærið annað slagið í pottinum. Gætið þess vel að sjóða karamelluna ekki of lengi.
Hellið karamellunni yfir kökuna og dreifið úr henni þar til hún myndar jafn lag yfir kökunni. Stráið maldonsalti yfir. Látið kólna í ísskáp og skerið síðan í smáa bita.
Njótið!