Ertu með banana í skál sem eru á síðasta snúningi?
Hentu þá í þessa ljúffengu bananaköku með súkkulaðikremi.
Við vitum flest hversu hollir og góðir bananar eru fyrir okkur – og þess vegna er auðvitað frábært að geta notað þá í svona ljúffenga köku.
En þessi æðislega kaka er frá henni Svövu á Ljúfmeti og lekkerheit.
Bananakaka
- 75 gr smjör
- 2 ½ dl sykur
- 2 msk mjólk
- 1/4 tsk salt
- 1 tsk vanillusykur
- 2 egg
- 2 þroskaðir bananar
- 100 g súkkulaði
- 2 ½ dl hveiti
- 1 tsk matarsódi
Aðferð
Bræðið smjörið og látið kólna aðeins.
Hrærið því saman við sykur, mjólk, salt og vanillusykur.
Aðskiljið eggjarauður og eggjahvítur og hrærið eggjarauðunum saman við deigið.
Stappið bananana og hrærið saman við deigið.
Hakkið súkkulaðið og blandið saman við hveiti og matarsóda.
Hrærið blöndunni síðan saman við deigið.
Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið þeim að lokum í deigið.
Setjið deigið í vel smurt form og bakið við 175° í 30-40 mínútur.
Kakan á að vera örlítið blaut í sér þannig að ekki baka hana of lengi.
Súkkulaðikrem
- 30 gr mjúkt smjör
- 2 ½ dl flórsykur
- ½ tsk vanillusykur
- 3 msk kakó
- 50 gr Philadelphia rjómaostur
Hrærið smjöri, flórsykri, vanillusykri, kakói og rjómaosti saman þar til blandan er slétt.
Smyrjið yfir kökuna sem hefur fengið að kólna.
Njótið síðan þessarar dásemdar með þeyttum rjóma.