Það er ekkert leyndarmál að góð förðun og förðunarvörur geta gert kraftaverk. Í dag er til lausn við næstum öllu og margir eru duglegir að nota það sem í boði er.
Hér er Joann, 78 ára kona sem er allt annað en hrifin af því að eldast. Sonur hennar er frægur förðunarmeistari og fékk hana til að gera þetta myndband með sér.
Sefur með förðunina
Joann tekur sérstaklega fram að hún hljóti að elska son sinn meira en orð fá lýst fyrst hún hafi látið hann plata sig í þetta. Hún er aldrei óförðuð og ógreidd og kann afskaplega illa við sig þannig – og hún sefur meira að segja með förðunina og þrífur hana af sér á morgnana og farðar sig aftur.
Þótt við séum ekki hlynnt því að sofa með förðunina þá virðum við hennar viðhorf fullkomlega, en Joann finnst að fólk eigi að fá að hafa hlutina eins og það vill án þess að aðrir séu að skipta sér af því.
Það er ekki hægt annað en að segja að Joann kunni vel á förðunarburstana en hún yngist um mörg ár þegar hún er búin að farða andlitið og taka hárið í gegn.
Já máttur förðunarinnar getur verið mikill!