Þegar þú hefur verið með maka þinum í lengri tíma er fátt sem þú veist ekki um viðkomandi.
Eða hvað?
Samkvæmt erlendri könnun kemur í ljós að það er ýmislegt sem karlmenn vita t.d. ekki um konur sínar.
Sumt af þessu kemur verulega á óvart en annað ekki – og maður veltir því líka fyrir sér hvort konurnar séu eitthvað betri og viti allt um menn sína.
Hér eru 15 hlutir sem menn vita ekki um konur sínar
1. Farsímanúmerið hennar – 54% eiginmanna muna það ekki.
2. Hvert hennar uppáhaldslag er – en 54% vita það ekki.
3. Brjóstahaldarastærð – 39% þeirra vita það ekki.
4. Dagsetninguna þegar þið hittust – 35% ekki með það á hreinu.
5. Uppáhalds ilmvatnið hennar – 34% vita það ekki.
6. Hvar hún gekk í skóla – 28% vita það ekki.
7. Hver hennar uppáhalds fataverslun er – 24% ekki með það á hreinu.
8. Skóstærð – 23% vita það ekki.
9. Hvaða fatastærð hún notar – 23% ekki með það á hreinu.
10. Nærbuxnastærð – 20% vita það ekki heldur.
11. Hverja hún álítur sína bestu vinkonu – 20% ekki með það á hreinu.
12. Hverju hún hefur ofnæmi fyrir – 20% þekkja það ekki.
13. Hver hennar náttúrulegi hárlitur er – 11% ekki með það á hreinu.
14. Afmælið hennar – 12% klikka á því, sem er auðvitað ótrúlegt!
15. Hvaða titil hún ber í vinnunni – en 10% eru ekki vissir um það.