Kettir geta verið góðir vinir og félagsskapur. Og þeir geta líka verið afar fyndnir.
Eins og flestir vita eflaust þá er t.d. hægt að hlæja endalaust að kisumyndböndum á Youtube.
Ekki bara sætir og loðnir
En við eigum það til að hugsa bara um ketti sem litla sæta loðna félaga og gerum okkur ekki grein fyrir því að kettir geta verið mjög svo góðir fyrir heilsu fólks.
Það hefur verið sannað oftar en einu sinni að kettir eru meira en bara góður félagsskapur. Þeir hafa þann eiginleika að róa fólk niður með sínu mali og getur það verið gott meðal fyrir þá sem þjást af hjartasjúkdómum.
Vissir þú að það að eiga kött getur dregið úr hættunni á hjartaáfalli?
Í rannsókn sem stóð yfir í 10 ár var niðurstaðan sú að kettir eru róandi og bara það að hafa kött í kjöltu og klappa honum dregur úr stressi. Í þessari rannsókn tóku 4,000 manns þátt og var hún gerð af the University of Minnesota, Stroke Institute í Minneapolis.
Eftir þessi 10 ár þegar farið var yfir niðurstöður kom í ljós að þeir sem áttu kött voru 30% minna líklegir til að látast af völdum hjartaáfalls en þeir sem ekki áttu kött.
Ástæðan var sú að kattareigendurnir voru með hjartslátt á réttu róli, lítið fór fyrir stressi og blóðþrýstingur var lágur. Og það er ekkert grín að geta lækkað áhættuna á hjartaáfalli um allt að 30%.
Einnig hafa kettir þau áhrif að þeir losa um oxytocin í heilanum. Þið vitið, hormónið sem lætur okkur líða afar vel, er tengt við tilfinningar eins og ást og er afar gott fyrir líkamann.
Einnig losnar um serotonin og dopamine í heila þegar þú ert t.d að leika við kött en þessi efni draga verulega úr stressi og koma reglu á ónæmiskerfið.
Rannsóknir hafa sýnt fram á eftirfarandi
– Gæludýraeigendur eru minna líklegir til að verða þunglyndir en þeir sem eiga ekki gæludýr.
– Fólk sem á gæludýr er minna líklegra til að…
Lesa meira HÉR