Þvílík snilld! Breska fyrirtækið Nails Inc kynnir nýja vöru sem við munum án efa elska.
Við erum að tala um naglalakk í spreybrúsa sem þú einfaldlega spreyjar á neglurnar. Nú þarf það ekki lengur að taka óratíma að gera neglurnar fínar.
„The Paint can“ eins og það er kallað kemur í verslanir í dag, 12. nóvember, og kemur í tveimur litum til að byrja með. Bleikum og silfurlituðum. En fyrirtækið lofar því að strax á næsta ári verði hægt að fá spreyið í öllum regnbogans litum.
Tekur enga stund
Þetta gæti ekki verið einfaldara. Þú hristir brúsann. Spreyjar á neglurnar og þværð þér svo um hendurnar með volgu vatni, eða hreinsiklút. Til að liturinn haldist lengur er mælt með að lakka yfir með yfirlakki, eins og þú mundir gera vanalega.
Vel gert Nails Inc 🙂
Sigga Lund