Þessi mynd hefur snert streng í hjarta margra en hún var sett á netið af Shanna, sem er móðir hins fimm ára gamla Kainoa.
Aldrei upplifað aðra eins stund
Með myndinni setti Shanna texta þess efnis að hún hefði aldrei upplifað aðra eins stund. Þetta var í fyrsta sinn sem sonur hennar, sem er einhverfur, hitti hjálparhund sinn, Tornado – og lagðist drengurinn sjálfviljugur hjá hundinum. En þau höfðu undirbúið sig og beðið í tvö ár eftir að hitta Tornado.
Getur hvorki knúsað hann né snert
Þá lýsir Shanna því að myndin fangi svip móður sem horfi á son sinn leggjast af frálsum vilja hjá hundinum, en hún hins vegar geti ekki knúsað son sinn eða snert hann, og hvorki klætt hann né þrifið. Þetta er svipur móður sem hefur horft upp á son sinn upplifa óteljandi misheppnaðar tilraunir til að eiga félagsleg samskipti, og sem hefur grátið heilu næturnar.
En þessi stund gerir alla baráttu þeirra fyrir því að fá hundinn þess virði. Og nú vegna þess að Tornado er kominn til þeirra veit hún í hjarta sér að allt verði í lagi.