Við förum alveg að detta í jólagírinn enda styttist óðfluga í fyrsta sunnudag í aðventu.
Og það er alltaf spennandi ár hvert að sjá nýjar jólauglýsingar erlendra stórfyrirtækja sem leggja mikið í auglýsingarnar svo vel takist til.
Hér er glæný auglýsing frá bresku verslunarkeðjunni Marks & Spencer. En í ár slá þeir í gegn með þessari flottu leiknu auglýsingu með jólasveininum þar sem reyndar Sveinka er í aðalhlutverki.
Um gerð auglýsingarinnar sá leikstjórinn Tom Hooper en hann leikstýrði myndinni King´s Speech hér um árið. Svo það er greinilega öllu til tjaldað. Þá er leikkonan, sem leikur Sveinku, vel þekkt en hún heitir Janet McTeer og hefur m.a. hlotið Golden Globe.
Í þessari auglýsingu er Sveinka öllu nútímalegri en Sveinki sjálfur – og á sinn hátt reddar hún hlutunum fyrir jólin.
Sjáðu líka þessa sætu og fallegu auglýsingu HÉR – en hún er æði!