Allri hippatískunni sem nú er ráðandi fylgja auðvitað útvíðar buxur. Og þótt þið hafið aldrei ætlað í svoleiðis buxur aftur þá er þetta engu að síður málið. En auðvitað eru niðurþröngar og beinar buxur líka inni svo ef þú getur ekki hugsað þér að fara í þær útvíðu þá er margt fleira í boði.
„Seventís“ er málið
„Seventís“ gallabuxurnar eru samt enn einu sinni komnar í tísku. Flestar konur sem upplifðu hippatímabilið áttu svona buxur á sínum tíma. Nú geta þær rifjað upp gamla tíma og jafnvel rótað í kössum í geymslunni og dregið gömlu fötin aftur upp.
Buxurnar í dag eru bæði úr dökku og ljósu gallaefni og mikilvægt er að þær séu þröngar um lærin og víkki síðan niður. Smart er að nota jakka við þessar buxur.
Leikkonan Jessica Alba er alltaf smart en hér notar hún blazer-jakka við buxurnar.
Fyrirsætan Gisele Bundchen klæðist hér sama litatóninum sem lengir líkamann.
Þetta dress er einstaklega smart og klassískt með dökkbláum „sailor“ jakka.
Og hér notar leikkonan January Jones hlébarðajakka við sínar gallabuxur.
Þá eru slár líka flottar við útvíðu buxurnar.