Sophi er lánsöm lítil 7 ára stúlka og þótt hún hafi fæðst án handleggja lætur hún ekkert stoppa sig. Við teljum hana lánsama því tveggja ára gömul var hún ættleidd frá Kína, ásamt blindri systur sinni, af afar góðu og umhyggjusömu fólki.
Lætur ekkert stoppa sig
Sophi á 9 systkini og eru því börnin samtals 10 en 7 þeirra eru ættleidd og eiga við fötlun að stríða.
En Sophi litla lætur ekkert stoppa sig og elskar til dæmis að dansa af því það gerir hana hamingjusama. Og hún hefur lært að nota fætur sína eins og hendur, til dæmis til að borða, skrifa og margt fleira.
Skilaboð hennar
Foreldrar hennar segja að Sophi sé einstaklega jákvæð og með ótrúlegt viðhorf til lífsins. Hún er hress, kát og skemmtileg, með sterkan persónuleika og gefst ekki upp.
Skilaboð Sophi til okkar allra er að láta engan stoppa sig í að gera það sem mann langar til.
Sannarlega einstök lítil stelpa og greinilega mikill gleðigjafi ♥