Hvernig líst ykkur á þessar neglur fyrir jólin?
Við erum alveg veikar fyrir öllum þessum flottu nöglum í hátíðarbúningi. Hér eru 6 útgáfur af nöglum sem smellpassa við árstíðina.
Þessar fyrstu hér eru auðvitað ferlega sætar og jólalegar.
Dimmrauðar og gylltar neglur sem fara vel við sparifötin.
Þessar eru ansi hreint flottar og skemmtilegar.
Og þessar hér enn glæsilegri.
Stílhreinar og fallegar í ljósum lit en með gylltri rönd.
Og svo auðvitað smá glimmer. Virkilega töff!
Hvað er þitt uppáhald?
Við getum ekki gert upp á milli og langar að prófa þetta allt fyrir jólin.