Allir karlmenn þurfa að eiga góð og vönduð sólgleraugu enda ef réttu gleraugun eru valin setja þau punktinn yfir i-ið.
Á meðan konur kaupa sér nokkur sólgleraugu láta margir karlmenn sér nægja að fjárfesta í einum góðum og er því eins gott að vanda valið.
Hér eru nokkur góð fyrir herrana
Svört, gyllt og egglaga frá Eyevan.
Svart, málmur og litur í gleri frá Asos.
Flott og nýtískuleg frá Warby Parker
Blá og handunnin frá Cutler and Gross
Ítölsk og innblásin af leikaranum Steve McQueen frá Persol.
Naumhyggjustíll með nútímayfirbragði frá Spitfire.
Johnny Depp með lituð gler – sem er ákaflega vinsælt núna.
Öðruvísi Ray-Ban með lituðu gleri.
Klassísk Ray-Ban standa alltaf fyrir sínu.
George Clooney með klassísk Ray-Ban.
Þessi frá Tom Ford eru glæsileg.