Langar þig að kúka gulli?
Ég meina í alvörunni?
Inniheldur 24 karata gullflögur
Gleyptu eina svona pillu og hægðirnar verða gullni slegnar. Hér er ekkert grín á ferðinni, þessi vara er til í alvörunni. Ein pilla kostar um 55 þúsund krónur og inniheldur 24 karata gullflögur, og nóg af þeim.
Það er hinn forríki Tobias Wong sem á hugmyndina að þessu. Hann hafði fólk í huga sem á skítnóg af peningum og á allt….nú nema kannski gullpillur til að gera númer tvö. Við hin …? Við höldum bara áfram að reyna að láta enda ná saman og teflum við páfann á látlausan hátt.
(Gullpillan var til umfjöllunar á incrediblethings.com)
Sigga Lund