Í dag eru fléttur og snúningar mjög vinsælir enda er endalaust hægt að leika sér með hvoru tveggja. Þess vegna er þetta frábæra nýja tæki frá BaByliss svo ótrúlega sniðugt og er hér klárlega komin jólagjöfin í ár fyrir skvísur á öllum aldri.
Endalausir möguleikar Twist Secret
Twist Secret er eitt það nýjasta í tækjum fyrir hárið og býður upp á óteljandi möguleika. Í rauninni er ekki hægt að skilgreina tækið á einn ákveðinn hátt þar sem notagildið fer algjörlega eftir þínu eigin hugmyndaflugi. En í grófum dráttum þá er Twist Secret hártæki sem vefur upp á hárið á afar fljótlegan og auðveldan hátt. Í nokkrum einföldum skrefum býrðu til vafninga og krullur eins og þig lystir. Þetta er bara spurning um að gefa hugmyndafluginu lausan tauminn og prófa eitthvað nýtt.
Gefum 2 svona tæki
Í samstarfi við BaByliss á Íslandi ætlum við að gefa tveimur heppnum lesendum okkar svona tæki.
Frábær jólagjöf til ykkar.
Það sem þú þarft að gera til að vera með í pottinum
Vera viss um að þú sért búin/n að setja LIKE við Facebooksíðu Kokteils HÉR.
Deila þessu síðan á veginn þinn og hafa stillt á public svo við sjáum að þú hafir deilt.
Við drögum eitt tæki út 25. nóvember og annað þann 29. nóvember.
Kíktu svo endilega á þessu myndbönd og sjáðu hvernig Twist Secret virkar.