Það sem að við vorum glaðar hér á Kokteil þegar þetta snilldartæki kom á markaðinn. Við erum nefnilega algjörir klaufar með krullujárnið en þetta tæki hins vegar leikur í höndunum á okkur.
Og það sem þetta blessaða tæki hefur bjargað okkur oft. Slæmir hárdagar tilheyra einfaldlega sögunni til.
Ætti að vera staðalbúnaður hjá öllum konum
Okkar skoðun er sú að Curl Secret frá Babyliss ætti að vera staðalbúnaður hjá öllum k0num. Það sparar bæði tíma og fyrirhöfn … og er ótrúlega einfalt í notkun. Fyrst að við ráðum auðveldlega við það með okkar þumalputta þá ráða allir við það. Svo eru krullurnar sem það gerir alveg ótrúlega fallegar.
Þess vegna erum við í sjöunda himni að geta gefið einum vini okkar svona græju í jólagjöf. Og ef þú átt ekki svona nú þegar og vilt vera viss um að eignast svona tæki þá er bara að skella Curl Secret á óskalistann fyrir jólin. En á meðan geturðu freistað gæfunnar hjá okkur.
Kíktu á myndbandið og sjáðu hvað þetta er einfalt
Gefum heppnum vini Curl Secret
Í samstarfi við BaByliss á Íslandi ætlum við að gefa einum heppnum lesanda okkar svona tæki og þú gætir orðið heppin/n.
Frábær jólagjöf til ykkar – verðmæti tækis er um 20.000 kr.
Það sem þú þarft að gera til að vera með í pottinum
Vera viss um að þú sért búin/n að setja LIKE við Facebooksíðu Kokteils HÉR.
Deila þessu síðan á veginn þinn og hafa stillt á public svo við sjáum að þú hafir deilt.
Við drögum út föstudaginn 11. desember.