Liggur þú andvaka þegar þú ert komin/n upp í rúm?
Eða nærðu að sofna en ert vöknuð/vaknaður stuttu seinna?
Mataræðið gæti verið orsökin á þessu svefnmynstri.
Passaðu þig á þessum fimm fæðutegundum ef þú átt erfitt með svefn
Koffín – kaffi
Það vita nú allir að koffín er örvandi og á ekki að drekka seint á kvöldin. Passaðu einnig upp á að ætlir þú að fá þér te, lestu utan á pakkann til að vera viss um að það innihaldi ekki koffín. Sum lyf geta einnig innihaldið koffín.
Áfengi
Eitt glas af víni, ætti það ekki bara að róa mann niður og hjálpa til við svefninn? En það eru ekki allir sammála því. Áfengið hjálpar þér við að svífa inn í draumaheiminn en það dregur stórlega úr REM svefninum og þegar þú vaknar gæti þér liðið eins og þú hafir rétt náð að dorma í stutta stund.
Allur vökvi
Vatn er frábært ef þú ert í átaki og ætlar að missa nokkur kíló, en að drekka mikið af því seinni partinn og á kvöldin gerir það að verkum að þú vaknar til að pissa um miðja nótt og getur jafnvel ekki sofnað aftur. Mælt er með að drekka…
Lesa meira HÉR