Þeir segja þetta vera best geymda leyndarmál í heimi. Og kannski það sé rétt hjá þeim. Alla vega virðist þetta vera afskaplega kósý og notalegt, svo ekki sé nú talað um fegurðina.
Væri áhugavert að heimsækja
En þessi litlu heillandi snjóglerhús eru úti í miðri náttúrunni í Lapplandi í Finnlandi. Þá lofa þeir líka að þetta sé einn besti staður í heimi til að sjá norðurljósin en auðvitað vitum við Íslendingar hvar besti staðurinn er 🙂
Alla vega þá er þetta staður sem áhugavert væri að heimsækja. Og þá ekki síst fyrir jólin enda er sérstök dagskrá í gangi þá.
Fyrir áhugasama er hér linkur á heimasíðu fyrirtækisins.