Það skiptir ekki máli hvað þú ert gömul/gamall. Þú getur gert nákvæmlega það sem þú vilt. Líka að fylgja nýjustu hártískustraumum og því geturðu flaggað litríku hári, ef þig langar til þess.
Ekki láta aldurinn stoppa þig
Það er löngu orðið úrelt að fara í eldhússlopp og túbera á sér hárið þegar aldurinn færist yfir eins og konur gerðu hér áður fyrr. Nú er öldin önnur – því nú er málið að stíga út fyrir þægindarammann og vera algjörlega maður sjálfur, á hvað aldri sem er.
Er það ekki æðislegt 🙂
Sjáðu þessar flottu konur hér sem láta aldurinn ekki stoppa sig. Þær eru allt annað en hefðbundnar konur á efri árum. Þessr konur eru töff. Ef þær geta þetta getur þú það líka.
Leikkonan Helen Mirren er alltaf óhrædd við að prófa eitthvað nýtt.
Sigga Lund