Frábær drykkur fyrir flatan maga og nauðsynlegur gegn uppþembu

Þessi girnilegi smoothie er nauðsynlegur þeim sem eiga við það algenga vandamál að stríða að þjást af uppþembu. En innihald drykksins hjálpar meltingunni og kemur í veg fyrir uppþembdan maga. Öll innihaldsefnin hjálpa Gríska jógúrtin gefur gott magn kalks og próteins. Bláberin auka brennsluna og brenna fitu og ananasinn inniheldur ensím sem auðveldar meltinguna og kemur í veg fyrir uppþembu. Og grænkálið er auðvitað fullt af trefjum...

Skoða

Fimm afar einföld og gagnleg húsráð við heimilisþrifin

Stundum geta góð húsráð bjargað málunum. Þess vegna er svo gott að kynnast nýjum og nýjum ráðum og það má sífellt bæta fleiri ráðum og trixum í húsráðabankann. Hér eru fimm snilldar húsráð Hreinsaðu straujárnið Þeir sem strauja mikið þekkja það hvernig straujárnið verður gjarnan skítugt á botninum, þ.e. á strauhliðinni. Til að hreinsa það í burtu er gott að dreifa salti yfir strauborðið og strauja fram og til baka yfir það með heitu...

Skoða

Hvað segir stjörnumerkið þitt um þínar drykkjuvenjur?

Með hverjum er best og skemmtilegast að fá sér í glas? Sumir vilja meina að stjörnumerkin hafi þar áhrif og því skuli ekki hundsa þátt þeirra í þessu. Stjörnufræðin og drykkjuvenjur En hefurðu eitthvað hugsað út í það að kannski sé betra að fara út með einhverjum ákveðnum vini frekar en einhverjum öðrum, byggt á stjörnumerkjum þeirra? Það er alltaf gaman að skoða stjörnumerkin og einkenni þeirra og alveg sama hvað manni finnst um...

Skoða

Morgunmaturinn er víst ekki mikilvægasta máltíð dagsins

Því hefur lengi verið haldið fram að morgunmaturinn sé mikilvægasta máltíð dagsins og þeim sem vilja grennast bent á að borða góðan morgunmat. Morgunverðurinn hefur verið talinn nauðsynlegur til að koma brennslunni í gang og til að ná sér í orku fyrir daginn. En nú segja sérfræðingar að engin vísindi né sannanir liggi á bak við þessa fullyrðingu. Ekki mikilvægasta máltíðin Og sú hugmynd að sé morgunmatnum sleppt þá séu yfirgnæfandi...

Skoða

34 lífslexíur sem allar konur þurfa á að halda

Þegar við eldumst áttum við okkur sífellt betur á lífinu og hvernig við viljum lifa því. En það er samt alltaf jafn gott að fá smá áminningu um hvernig við getum gert líf okkar enn betra – það eru nefnilega oft þessir litlu hlutir sem geta gjörsamlega gert gæfumuninn. Hér eru 34 atriði sem eru fín lífslexía fyrir okkur allar   1. Lífið er ekki alltaf sanngjarnt – en það er samt gott. 2. Ef þú ert í vafa farðu þér þá hægt....

Skoða

Tíu snilldar leiðir til að nota alla stöku sokkana sem safnast upp

Allir sem sjá um þvottinn á sínu heimili þekkja það að sitja uppi með nokkra staka sokka eftir dag í þvottahúsinu. Við klórum okkur alltaf jafnmikið í hausnum yfir þessu en af einhverri óskiljanlegri ástæðu týnist annar helmingurinn af parinu oftar en við viljum sætta okkur við. En ekki hafa áhyggjur og alls ekki henda þessum munaðarlausu sokkum í ruslið. Það er nefnilega hægt að nýta þá í eitt og annað. Hér eru frábærar hugmyndir 1....

Skoða

Lengdu lífið og hægðu á öldrunarferlinu með þessum sjö atriðum

Þrátt fyrir að við getum aldrei komið alveg í veg fyrir öldrun líkamans er engu að síður ýmislegt sem við getum gert til að hafa áhrif á það. Hvernig við eldumst og hvað við lifum lengi hefur mikið með lífshætti okkar að gera. Vissulega eru alltaf undantekningar á því og virðast stundum ólíklegustu þættir og lífshættir einkenna langlíft fólk. Hér eru sjö þættir sem eru taldir geta hjálpað okkur að hægja á ferlinu Ólífuolía Olían er...

Skoða

Gómsætar hollustu nammikúlur – Bæði vegan og ekki

Þessar girnilegu og gómsætu kúlur eru algjört sælgæti en samt mun hollari en þig grunar. Þær má líka útbúa þær annað hvort vegan eða ekki. Kúlurnar eru frábær eftirréttur, orkubiti, snarl, sælgæti og bara ef þig langar í eitthvað virkilega gott. Svo er alveg einstaklega einfalt að útbúa þær – sem okkur finnst auðvitað mikill kostur. Það sem þarf 1 bolli döðlur 1 bolli Rice Krispies ½ bolli kakó 2-3 msk mjólk að eigin vali (fer eftir...

Skoða

Nákvæmlega þess vegna ættirðu að borða avókadó á hverjum degi

Hér eru 7 góðar ástæður fyrir því að borða avókadó á hverjum einasta degi. 1. Góð fita Avókadó, eða lárperan, er stútfull af góðri fitu – sömu góðu fitunni og er í ólífuolíu. Þess vegna er lárperan sérstaklega góð fyrir hjartaheilsu okkar. 2. Gerir þig mettan Þá getur þessi góða fita og auk þess trefjarnar í lárperunni haft hemil á hungrinu. Rannsóknir sýna að máltíðir og réttir sem innihalda avókadó eru saðsamir og gera okkur...

Skoða

Dýrindis súkkulaði- og bananakökulengjur

Það er alltaf jafn notalegt að eiga eitthvað heimabakað með kaffinu um helgar – og þessar dýrindis lengjur hér svíkja svo sannarlega ekki.  Svo er þetta líka frekar einfalt í framkvæmd. Það eru Dumle bananakaramellurnar sem gefa lengjunum bananabragð og þetta er auðvitað algjört æði. Hún Svava á Ljúfmeti og lekkerheit deilir hér með okkur þessari uppskrift. Það sem þarf 150 g smjör við stofuhita 3,75 dl hveiti 1,5 dl sykur 3 msk...

Skoða

Þetta er nokkuð sem öll yngstu börn ættu að kannast við – Þótt þau séu fullorðin

Það er gaman og áhugavert að skoða áhrif systkinaraðar á einstaklinginn. Því það er víst margsannað mál að hún skiptir máli – það er að segja hvar í röðinni þú ert og hvaða áhrif það hefur á persónuleika þinn. Eldri systkinum finnst til dæmis oft yngsta barnið njóta ýmissa forréttinda sem þau nutu ekki. En hér eru 12 merki þess að þú ert yngsta barnið 1. Foreldrar þínir nenntu ekki að spá í þetta Þegar þú fæddist voru foreldrar...

Skoða

Pör sem deila húsverkunum stunda meira kynlíf

Það er þetta með húsverkin, hjónabandið og kynlífið. Samkvæmt könnun sem framkvæmd var árið 2002 kom í ljós að hjón stunduðu minna kynlíf ef eiginmaðurinn hjálpaði til við heimilisverkin – sem sumum fannst hljóma ótrúverðugt. Þegar Matt Johnson prófessor og sérhæfður fjölskylduráðgjafi las í þessa könnun þá hugsaði hann með sér að þetta gæti ekki verið. Ekki miðað við hans reynslu af fjölskyldu- og hjónaráðgjöf í gegnum tíðina....

Skoða

Frábær aðferð til að hreinsa glerið í ofnhurðinni án eiturefna

Hver þekkir það ekki að glerið í ofnhurðinni á bakaraofninum er grútskítugt! Með tímanum verður glerið bæði skýjað og skítugt svo erfitt getur verið að sjá inn í ofninn. Frábær aðferð Það getur reynst erfitt að ná glerinu skínandi hreinu. En hér er frábær aðferð – þar sem einungis er notast við náttúruleg efni. Að sjálfsögðu er það matarsódinn sem kemur hér við sögu, en við þreytumst seint á því að fjalla um eiginleika og...

Skoða

Þær eru yfir 100 ára og alveg dásamlegar – Og með frábær ráð fyrir okkur

Við ættum að gefa okkur tíma til að hlusta á eldra fólkið okkar. Þau hafa reynsluna og vita um hvað lífið snýst – og ættu því að geta miðlað af reynslu sinni og gefið okkur góð ráð. Þessar tvær dásamlegu konur hér í myndbandinu voru 101 árs og 104 ára þegar þetta myndband var gert. Þær voru spurðar út í það hvernig maður öðlast hamingjuna… og það stóð ekki á svarinu. Betty, 101 árs, segir að allt of margir haldi að...

Skoða

Börn útivinnandi mæðra standa sig vel og eru umhyggjusöm

Í gegnum tíðina hafa fjölmargar útivinnandi mæður haft nagandi samviskubit yfir því að vera of mikið í burtu frá börnum sínum. Og margar þeirra hafa á köflum upplifað sig sem ekki nógu góðar mæður. Ekki svo slæmt En nú geta allar þessar mæður andað léttar því samkvæmt rannsóknum er þetta ekki talið há börnunum til langs tíma litið. Rannsókn sem framkvæmd var við Harvard Business School í Bandaríkjunum þykir sýna fram á að dætur...

Skoða