Freistar það þín að fara með makanum í „swing“?
Flestir vita hvað „swing“ er en færri vita út á hvað það raunverulega gengur. Í nútímasamfélagi þykir sumum það ekki lengur eins mikið tabú að stunda þennan lífsstíl heldur lítur fólk svo að að þetta sé aðeins einn möguleiki af mörgum til að uppfylla kynlífslanganir sínar. „Swing“ er spennandi lífsstíll segja þeir sem stunda það. En það gengur vanalega út á að pör mæla sér mót við önnur pör og skipta mökum. Þetta á sér stað í lokuðum...
GJAFALEIKUR – Nýtt ilmvatn, húðkrem og ný frábær vara sem lengir augnhárin
Áfram heldur 1 árs afmælisveislan okkar og nú er komið að þessum frábæru vörum. En við ætlum að gefa einum heppnum lesanda þennan glæsilega pakka. Æðislegur nýr 007 dömuilmur Nýlega kom á markaðinn ilmur fyrir konur úr 007 línunni en herrailmur hefur lengi verið fáanlegur. Dömuilmurinn er auðvitað ómótstæðilegur eins og sönnum Bond-skvísum sæmir. Og á að endurspegla hið hættulega og tælandi eðli Bond-kvenna. Ilmurinn er innblásinn af...
Huffington rankaði við sér í blóðpolli á skrifstofu sinni… vilt þú eignast bókina hennar?
Afmælisleikirnir halda áfram hjá okkur en við verðum 1 árs þann 5. mars – og gefum YKKUR gjafir allan marsmánuð. Nú ætlum við að gefa þremur heppnum lesendum þessa frábæru nýju bók eftir Ariönnu Huffington aðalritsjóra Huffington Post. En bókin er okkur öllum þörf lesning í því samfélagi sem við búum við í dag. Ein áhrifamesta kona heimsins Arianna Huffington er stofnandi og aðalritstjóri Huffington Post og ein áhrifamesta kona...
Getur gerð kynlífsmyndbands kryddað upp á kynlífið og glætt sambandið lífi?
„Vissulega getur heimilisleg kvikmyndagerð kryddað kynlífið. En á þessari tækniöld þar sem allt getur lekið á veraldarvefinn er margt sem ber að varast. Margar konur sem hafa leikið aðalhlutverkið í slíku hafa lent illa í því. Þrátt fyrir það getur gerð erótísks myndbands, upptaka eða kynæsandi ljósmyndataka virkað spennandi fyrir sum pör og það er í lagi svo lengi sem kynlíf þeirra snýst ekki eingöngu um það“, segir sálfræðingurinn...
Þessi tíu voru öll glæsileg og flott á Óskarnum
Það er alltaf gaman að sjá hverju stjörnurnar klæðast við hina árlegu Óskarsverðlaunahátíð. Hér eru nokkrar stjörnur sem okkur þótti bera af í ár. Leikkonan Olivia Munn í kjól frá Stella McCartney. Leikkonan Priyanka Chopra í kjól frá Zuhair Murad. Fyrirsætan Chrissy Teigen kasólett í guðdómlegum kjól frá Marchesa. ...
GJAFALEIKUR-Langar þig á námskeið hjá HREYFINGU eða frítt í ræktina?
Við erum komin í þvílíkt afmælisskap enda verðum við 1 árs þann 5. mars. Og eins og alltaf er á afmælum þá verða gefnar gjafir. Afmælisbarnið KOKTEILL er svo þakklátt fyrir frábærar móttökur þetta ár sem það hefur verið í loftinu að það ætlar að gleðja nokkra lesendur sína með góðum gjöfum. Við ætlum sem sagt að gefa YKKUR afmælisgjafir Við byrjum hér á skemmtilegum gjafaleik með HREYFINGU – en þar er að fara af stað nýtt námskeið sem...
Nýjasta æðið í New York-Regnbogabeyglur… og svona verða þær til
Þrátt fyrir að eigandi og upphafsmaður regnbogabeyglanna, Scot Rossillo, hafi bakað þær í meira en 20 ár hafa þær þó aldrei verið vinsælli. Röðin fyrir utan búðina hans virðist endalaus og ekkert lát er á vinsældunum. The Bagel Store er staðsett í Brooklyn í New York og seljast regnbogabeyglurnar gjarnan upp á tveimur tímum. Það er því óhætt að segja að þær séu uppáhald New York búa um þessar mundir. Bakar þúsund stykki á dag Scot...
106 ára og dansaði í Hvíta húsinu þegar hún hitti Obama hjónin
Hún Virgina McLaurin er 106 ára og fékk ósk sína uppfyllta þegar hún komst í Hvíta húsið í síðustu viku að hitta forsetann og forsetafrúnna. „Ég hélt ég myndi ekki lifa það að komast í Hvíta húsið, ég er að segja ykkur það, ég er svo hamingjusöm“, sagði Virgina sem tók dansspor og skríkti af gleði eins og táningur. Við segjum eins og forsetafrúin, „ég vil vera eins og þú þegar ég verð...
Þannig er hinn ákjósanlegi karlmannslíkami í hinum ólíku löndum
Leitin að „hinni fullkomnu líkamsímynd“ er ekki eitthvað sem aðeins þjakar konur – því karlmenn finna líka fyrir þrýstingi að hafa rétta líkamann. Eins og við höfum áður bent á hér á Kokteil er „hinn fullkomni“ líkami ekki til en engu að síður hefur fólk ákveðnar hugmyndir um hvernig hann eigi að líta út og það getur verið ansi breytilegt milli landa og heimsálfa. Markmiðið að sýna kröfur samfélagsins Í fyrra birtum við grein (sjá...
Bringuhár eða ekki… hvað finnst íslenskum konum?
Loðin eða rökuð karlmannsbringa? Það tala margar konur á okkar aldri um það hversu notalegt er að liggja við hlið karlmanns og strjúka hendinni í gegnum bringuhárin. En það er ljóst að við erum ekki allar sammála, því samkvæmt breskri könnun sem var gerð fyrir skemmstu kemur í ljós að flestar konur kjósa menn með rakaða bringu. Hvað finnst íslenskum konum? Konurnar voru meðal annars spurðar hvort þeim fyndist meira aðlaðandi;...
Ef konur væru með skegg… já hvernig finnst karlmönnum það!
Það er alveg ótrúlegt en það er nánast annar hver maður á Íslandi í dag með skegg. Enda þykir það mjög heitt um þessar mundir. Flestir skarta þeir alskeggi og sitt sýnist hverjum um þetta „tískutrend“, en flestir eru þó sammála um að þetta fari körlunum okkar vel. Ekki tekið út með sældinni Það er þó ekki tekið út með sældinni að eiga mann með mikinn skeggvöxt. Ég þekki það af eigin reynslu. Til dæmis er ekki best í heimi að kyssa þá,...
Eins og að eiga sitt eigið spa heima hjá sér – algjörlega frábært
Það er ekkert leyndarmál að til að húð okkar sé í góðu ástandi er mikilvægt að næra hana rétt. Þess vegna má ég til með að deila með ykkur einu af betri fegrunarráðum sem ég veit um – en ég er búin að nota vörurnar frá Blue Lagoon í um tíu ár og er mikill aðdáandi. Parabena fríar – sem er mjög mikilvægt Það sem er auðvitað það langbesta við húðvörurnar er að þær eru allar Parebena fríar og ofnæmisprófaðar sem gerir þær...
Svona getur verið hrikalega gott að búa ein… alein!
Það eru kostir og gallar við allt er gjarnan sagt. En á það líka við fólk sem býr eitt? Eflaust! Þegar betur er að gáð gætu kostirnir hins vegar verið fleiri en gallarnir. Grafíski hönnuðurinn Idalia Kandelas hefur mikið spáð í þessi mál og úr varð að hún teiknaði myndir af konum sem búa einar og því hvernig þær njóta litlu hlutanna í lífinu. Með þessum teikningum vill hún sýna fram á að það er munur á því að vera ein og búa ein. Oft...
Þetta hús í Sviss sýnir stórkostlegt samspil hönnunar og náttúru
Þetta hús sem sýnir stórkostlegt samspil náttúru og arkitektúrs er staðsett í svissnesku ölpunum. Eigendur hússins lögðu ríka áherslu á það við hönnuði þess að það myndi falla inn í náttúruna en ekki standa út úr. Og það hefur heldur betur tekist. Einstaklega kósý Húsið sem er einstaklega smekklega innréttað húsgögnum eftir þekkta hönnuði er hægt að fá leigt og kostar vikan um 350.000 krónur. Ekki amalegt að dvelja í...
Svona heldur þú kynlífstækjunum hreinum
Það er ýmislegt sem leynist í dótakassa kvenna á okkar aldri – og auðvitað er það jafn misjafnt og við erum margar. En það er aldrei hægt að minna okkur nógu oft á það hversu mikilvægt er að halda kynlífsleikföngunum okkar hreinum. Setjið öryggið á oddinn Í bók sinni Lostaleikir hvetur kynfræðinginn Tracy Cox konur og menn til þess að setja öryggið á oddinn og fylgja eftirfarandi leiðbeiningum: Haldið alltaf kynlífsleikföngunum...