Hvað er notalegra og rómantískara en að fara tvö á hótel?
Nú er Valentínusardagurinn á næsta leiti og þar sem við elskum að gleðja lesendur okkar ætlum við, í samvinnu við Icelandair Hotels, að bjóða einu heppnu pari að dvelja á Icelandair Hotel Akureyri í 2 nætur.
Eigðu gæðastund með ástinni þinni
Þetta er frábært hótel fyrir alla þá sem vilja skella sér á skíði, í leikhús, út að borða – og þá sem vilja eiga gæðastund með ástinni sinni.
Hótelið er nýtt og glæsilegt, en það opnaði árið 2011 og er vel staðsett í miðbæ Akureyrar, alveg rétt hjá hinni margrómuðu sundlaug þeirra Akureyringa. Herbergin eru fallega innréttuð með góðu útsýni. Fyrir þá sem stunda skíðaíþróttina þá stoppar skíðarútan beint fyrir framan hótelið og upphituð skíðageymsla hótelsins passar upp á búnaðinn.
Á hótelinu er nýuppgerður og vinsæll veitingastaður, Aurora, sem býður upp á frábæran matseðil og notalegt umhverfi. Þá er auðvitað ómissandi að eiga notalega stund í hótelgarðinum í stjörnubjartri nóttinni við arineld með skinnábreiður og heitan drykk.
Hljómar þetta ekki vel?
Það sem þú þarft að gera til að vera með í pottinum
Vera viss um að þú sért búin/n að setja LIKE við Facebooksíðu Kokteils HÉR.
Deila þessu síðan á veginn þinn og hafa stillt á public svo við sjáum að þú hafir deilt.
Við drögum vinningshafa út laugardaginn 13. febrúar (daginn fyrir Valentínusardaginn).
Vertu með!
Sjáðu líka það allra nýjasta frá Icelandair HÉR