Við sögðum ykkur í fyrra frá hinni 18 ára gömlu Madeline Stuart sem átti sér þann draum að vera fyrirsæta. Sá draumur hefur ræst og síðan þá hefur Madeline fengið ótal tækifæri.
Vill breyta því hvernig fólk skilgreinir fegurð
Madeline er með Downs heilkenni og vill hún breyta því hvernig fólk hugsar og skilgreinir fegurð – en hún og Rosanne, mamma hennar, eru á vegferð og ætla að breyta hugmyndum fólks um staðlaða fegurð.
Næst á dagskrá hjá Maddy, eins og hún er kölluð, er að undirbúa sig fyrir New York Fashion Week en þetta er í annað sinn sem hún tekur þátt í henni.
En hér er það nýjasta sem Maddy var að gera. Í þessu myndbandi er henni breytt í sex Disney prinsessur og hún er auðvitað glæsileg.
Við hér á Kokteil fylgjumst spennt með þessari flottu stelpu og segjum eins og áður; GO GIRL!
Hér má sjá fyrri grein okkar um Maddy.