Ert þú enn að leita af jólagjöf handa vinum og vandamönnum?
Hættu að leita því gjöfin er fundin.
Gefðu þeim Pringles ilmkerti.
Ilmar eins og uppáhalds snakkið
Þetta er langt frá því að vera grín og framleiðendum er fúlasta alvara. Þú getur nú í alvörunni keypt Pringles ilmkerti í þremur lyktartónum. Hver elskar ekki kerti? Og hvað þá þegar það ilmar eins og uppáhalds snakkið þitt!
Þetta er í raun alveg kjörin jólagjöf. Bæði sem gríngjöf fyrir þá sem fá slíkar, eða sem alvöru gjöf fyrir þann sem bókstaflega elskar Pringles. Það er margt vitlausara!
Merry Pringles 🙂
Sigga Lund