Ertu orðin leið á að vera alltaf með sömu eyrnalokkana, nú eða hálsmenið?
Hvað með að fá sér skartgripi í andlitið? Er það málið?
Djörf lína
Listakonan Akiko Shinzato hefur hannað nýja andlitsskartgripalínu sem er svolítið djörf. Hún segir að skartgripirnir sé innblásnir af útlitsdýrkun fólks í dag og hversu auðvelt það er að blekkja og breyta útlitinu til að líta betur út.
Hvað sem okkur finnst (furðulegt … halló) þá hefur línan vakið athygli og heillað marga í útlandinu, svo það er tímaspursmál hvenær þessi herlegheit lenda á klakanum.
Nú heyra neflokkar sögunni til – fáðu þér einn svona
Þú þarft ekki einu sinni að spá í varalit með þetta á andlitinu
Myndir þú fara svona á árshátíðina?
Sigga Lund