Nú fer tími árshátíða og ferminga í hönd og þá er gott að hafa nokkrar hugmyndir við höndina að góðum greiðslum.
Auðvitað erum við ekki öll jafn góð í því að gera uppgreiðslur en sumar greiðslur eru bara svo einfaldar í gerð að þær geta tæpast klikkað. Þessi hér er ein af þeim. Engu að síður er hún einstaklega smart.
Best er að hafa hárið ekki alveg brakandi hreint – en ef það er tandurhreint er gott ráð að setja örlítið þurrsjampó í hárið svo það verði viðráðanlegra.
Auk þess er alltaf betra að hafa hárið aðeins krullað þegar gera á slíkar uppgreiðslur.
Gangi ykkur vel!