Vissir þú að um 80% kvenna eru í rangri stærð af brjóstahaldara?
Ef brjóstahaldarinn þinn passar illa getur það skaðað þig.
Frekar skelfileg staðreynd, en þú hugsar kannski; hvað með það?
En þetta ætti að taka alvarlega. Brjóstahaldari sem passar illa gæti orsakað heilsutengd vandamál sem koma þér væntanlega á óvart.
Höfuðverkur og bakverkur er t.d. ekki eitthvað sem ætti að hundsa.
Þekktu þinn brjóstahaldara
Ef þú hefur orðið vör við þessi vandamál, eins og höfuðverk og bakverki, þá ertu í rangri stærð af brjóstahaldara.
– Hlýrarnir á haldaranum þrengja óþægilega á öxlunum.
– Brjóstin á þér flæða upp úr skálunum.
– Vírarnir eða parturinn undir skálunum er óþægilega oft kominn upp á mitt brjóst.
Er stundum erfitt að anda?
Ef brjóstahaldarinn er það þröngur eða ef vírarnir undir passa ekki fullkomlega á brjóstbeinið þá gætir þú fundið fyrir þeirri tilfinningu að það sé erfitt að draga djúpt andann.
Meltingatruflanir
Of þröngur brjóstahaldari getur orsakað meltingatruflanir. Ef hann er of þröngur um þig miðja þá getur flæði matarins stíflast á leiðinni ofan í maga.
Bakverkir
Röng stærð af brjóstahaldara þar sem bandið með krækjunum á bakinu skerst inn í bakið getur orsakað bakverki. Það sama á við um hlýrana, skerist þeir ofan í axlirnar á þér þá þarftu að hugsa þinn gang og fá þér stærri haldara eða með breiðari hlýrum.
Hokin í baki
Ef þú stendur þið stöðugt að því að vera hokin í baki þá…
Lesa meira HÉR