Vissuð þið að Scholl er komið með á markaðinn þetta snilldar tæki fyrir neglur á höndum og fótum?
Snilldin ein
Mér finnst ég hafa himin höndum tekið. Því fyrir svona manneskju eins og mig sem leiðist alveg hræðilega að taka neglurnar í gegn og raspa þær þá er þetta nýja tæki snilldin ein.
Tækið, eða naglapenninn, gengur fyrir batteríi og með því fylgja þrír hausar/fjalir. Einn virkar sem naglaþjöl, annar er til „buffa“ neglurnar og slétta yfirborð þeirra og þriðji hausinn gefur glans.
Auk þess er hægt að kaupa pakkningu sem inniheldur lítið glas af olíu fyrir neglur og naglabönd. En pakkningarnar koma tvenns konar, þ.e. með olíunni eða án – en þá er hægt að kaupa hana sér.
Svo þegar endurnýja þarf hausana, eða fjalirnar, er hægt að fá þá í sérpakkningu. Einnig er ágætt að eiga annað sett ef maður vill ekki nota það sama á hendur og fætur.
Tekur enga stund að taka neglurnar í gegn
Ég er ein af þeim sem er ekkert voðalega dugleg í því að lakka neglurnar í lit og þess vegna hentar þetta mér einstaklega vel. En auðvitað hentar þetta þeim líka vel sem lakka neglurnar reglulega. Það tekur enga stund að raspa neglurnar, snyrta þær og „buffa“ og fá svo þennan fína glans á eftir. Og neglurnar líta út fyrir að vera svo heilbrigðar og fallegar. Svo er þetta alveg ótrúlega þægilegt. Ekki hægt annað en að vera ánægður með þessa nýju græju.
Einmitt þess vegna er svo gaman að geta gefið heppnum vini okkar og lesanda eitt svona tæki og pakka með næringu. En naglapennann má svo fá í HAGKAUP og apótekum, auk Krónunnar og Fjarðarkaupa.
Sjáðu hér í myndbandinu hvernig tækið er notað
Gjafaleikur
Það sem þú þarft að gera til að vera með í pottinum
Vera viss um að þú sért búin/n að setja LIKE við Facebooksíðu Kokteils HÉR
Deila þessu síðan á veginn þinn og hafa stillt á public svo við sjáum að þú hafir deilt.
Við drögum vinningshafa út þriðjudaginn 13. desember.
Taktu þátt!
jona@kokteill.is