Hamingjan kemur ekki send til þín fallega innpökkuð. Hún kemur frá þínum eigin framkvæmdum.
– Dalai Lama
Þau algengu mistök sem fólk gerir er að leita að hamingjunni í allt öðru en hjá sjálfum sér. Við höldum að ný föt, góður kærasti, rétta húsið og allt flottasta dótið geri okkur hamingjusöm.
En þetta virkar svo sannarlega ekki svona.
Hamingjan kemur að innan – hér eru 6 atriði sem ýta undir óhamingjuna
1. Alltaf að gagnrýna allt og alla
Þú gagnrýnir þig og alla aðra. Afar oft þegar við erum óhamingjusöm þá erum við afar gagnrýnin á aðra svo þeim líði eins og okkur, og það sem verra er við gagnrýnum einnig okkur sjálf.
Gerðu þér grein fyrir því að þú og aðrir gera mistök og haltu svo áfram með lífið. Það á að meta það sem aðrir gera og einnig hvað við gerum sjálf.
2. Að vera háð/ur neikvæðum hlutum
Að finna meðalveginn er lykillinn. Það er ágætt að slappa af með bjór og góðum mat í lok dags en ekki láta þessa ánægju verða að ávana sem gæti leitt til frekari fíknar.
3. Að hanga í fortíðinni
Það getur verið afar erfitt að gleyma eða láta af fortíðinni – það er enginn spurning. Og í raun ættir þú ekki að gleyma henni.
Öll þau mistök sem gerð voru eiga að gera þig sterkari svo þú gerir ekki sömu mistökin aftur og aftur. En það er samt ekki verið að tala um að vera ávallt að velta sér upp úr fortíðinni.
Ef þú ert að gera það þá ertu að eyðileggja fyrir þér núið og framtíðina. Látt kyrrt liggja og horfðu fram á veginn.
4. Áhyggjur
Áhyggjur eru misnotkun á ímyndunaraflinu og í raun taka þær allan vindinn úr segli þínu. Þegar þú ert að hafa áhyggjur af því hvað gæti gerst á morgun þá er oft afar erfitt að takast á við nýjan dag þegar hann byrjar.
Hættu að hafa allar þessar áhyggjur. Hugsaðu frekar um öll þau tækifæri sem eru þarna úti fyrir þig.
5. Að láta hræðsluna taka völdin
Hvatning er frábær. Við þurfum…
Lesa meira HÉR