Bókin Kökugleði Evu hefur að geyma uppskriftir að rúmlega 80 ljúffengum kökum af öllum stærðum og gerðum.
Veisluborðin svigna
Í þessari girnilegu bók má finna kökur fyrir öll tilefni, allt frá smábitakökum að brúðartertum. Öruggt er að veisluborðin munu hreinlega svigna hjá þeim sem eiga þessa bók í hillunni hjá sér!
Eva Laufey er annálaður sælkeri og mikil kökukerling, eins og hún orðar það sjálf. Uppskriftirnar í bókinni eru fjölbreyttar, afar aðgengilegar og það er á allra færi að töfra fram dýrðlegu kræsingarnar í henni.
Bókina prýða glæsilegar ljósmyndir eftir Karl Petersson.
Bókinni er skipt upp í kafla sem skiptast í bollakökur, súkkulaðikökur, osta- og skyrkökur, uppáhaldskökur Evu, tilefniskökur, bökur og pæ, smábitakökur og gómsæta bita.
Gjafaleikur
Þar sem við erum alltaf í kökustuði og elskum að gleðja lesendur okkar ætlum við í samstarfi við bókaútgáfuna Sölku að gefa þremur heppnum vinum okkar þessa nýju og glæsilegu bók.
Það sem þú þarft að gera til að vera með í pottinum
Vera viss um að þú sért búin/n að setja LIKE við Facebooksíðu Kokteils HÉR
Deila þessum pósti síðan á veginn þinn og hafa stillt á public svo við sjáum að þú hafir deilt.
Við drögum bækurnar þrjár út fimmtudaginn 10. nóvember.
Vertu með!