Þessi stórglæsilegi og flotti bíll er loksins kominn til landsins en hans hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu. Enda nýstárlegur og einstaklega skemmtilegt eintak hér á ferð.
Stoppar stutt á Íslandi
Um er að ræða fyrsta eintakið af TOYOTA C-HR en bíllinn kom til landsins í vikunni og verður forsýndur með viðhöfn í kvöld, 20. október, þar sem valinn hópur fær að berja gripinn augum.
Bíllinn stoppar þó stutt við á Íslandi en hann var aðeins fenginn hingað til lands til kynningar. Hann verður síðan kynntur hjá söluaðilum Toyota um allt land í janúar 2017.
Í gær var bíllinn hífður upp á þak á sögufrægi húsi í miðbæ Reykjavíkur – og má sjá allt um það hér í þessu myndbandi.