Hún Sofia, sem er 7 ára gömul, er með skilaboð til okkar allra. En myndband með þessari flottu stelpu hefur farið hratt um netheima undanfarna daga – og skyldi engan undra því Sofia er svo keik og flott 7 ára stelpa.
Ræðir um Down syndrome
Móðir hennar ákvað að leyfa vinum sínum að njóta þessa skemmtilega myndbands þar sem hún ræðir um Downs heilkennið við dóttur sína. Og áður en hún vissi af hafði myndbandið farið eins og eldur í sinu um netið.
Í myndbandinu spyr hún Sofiu meðal annars hvort það sé ógnvekjandi að vera með Down syndrome og svar hennar er alveg yndislegt þar sem hún segir að það sé mjög spennandi og alls ekkert ógnvekjandi.
Sofia var ættleidd 16 mánaða gömul, frá Úkraínu, af foreldrum sínum en fyrir áttu hjónin þrjá stráka. Yngsti strákurinn er einnig með Down syndrome en foreldrunum finnst það mikill kostur fyrir systkinin tvö að hafa hvort annað.
Sjáðu hér í myndbandinu hvað Sofia er yndisleg og skemmtileg stelpa.