Hún er fyrirsæta í yfirstærð og dreymir um að verða feitasta kona í heimi. Monica sem er 27 ára gömul er nú þegar í stærð 38, það er að segja í amerískum stærðum en þær byrja á núll og síðan kemur tvö, fjögur og svo framvegis.
Í dag er Monica 318 kíló en hún segist eiga þó nokkuð í land til að ná því markmiði að verða feitust í heimi.
Kærastinn matar hana
Til að ná þessu markmiði sínu innbyrðir Monica átta þúsund hitaeiningar á dag – hvorki meira né minna. Og kærastinn hvetur hana áfram og leggur henni lið með því að matreiða stanslaust ofan í hana og raunverulega með því að mata hana.
Markmið Monicu er að verða 454 kíló eða það þung að hún geti ekki hreyft sig. Þannig telur hún sig verða eins og drottningu sem allir bera virðingu fyrir.
Hvað finnst ykkur um þetta? Við erum alla vega orðlaus!
Sjáðu myndbandið með Monicu hér