Þessi fallega og hjartnæma mynd hefur farið eins og eldur í sinu um netheima undanfarið og snert hjörtu fólks vegna sögunnar á bak við hana.
Ljósmyndarinn þekkti söguna
Litla stúlkan heitir Aubrey en faðir hennar var drepinn aðeins mánuði áður en dóttir hans fæddist.
Ljósmyndarinn, Kim Stone, var fengin til þess að taka myndir af nýfæddu barninu. Kim vissi um sögu barnsins og henni var efst í huga að færa móðurinni einhverja huggun.
Barnið fór að brosa
Faðir Aubrey var mikill mótorhjólamaður og þegar þær mæðgur mættu í myndatökuna vafði Kim barninu inn í teppi sem amma þess hafði gert og lagði hana niður og setti mótorhjóla hjálminn hjá henni. Þegar hún svo setti hanskann undir höfuð hennar byrjaði barnið að brosa. Kim hafði ekki stillt upp ljósunum né neinu öðru fyrir myndatökun en greip myndavélina og hóf að smella af á meðan móðir Aubrey stóð grátandi á bak við þær.
Og Kim náði þessari dýrmætu mynd – en það er eins og pabbinn haldi á litlu stúlkunni sinni ♥♥♥
abcnews greindi frá.