Það er oft talað um að borða eitt epli á dag til að forðast heimsóknir til læknisins.
En það nýjasta er hins vegar að viljir þú gera vel við heilann og halda lækninum í burtu þá ættirðu að borða súkkulaði.
Já þú last rétt, súkkulaði!
Svo segja rannsóknir
Rannsóknir sýna fram á að það að gæða sér á dökku súkkulaði reglulega geti varið heilann gegn vitsmunalegri hrörnun. Þetta hefur meðal annars rannsókn sem framkvæmd var við háskólann L’ Aquila á Ítalíu leitt í ljós.
Dökkt súkkulaði hefur löngu sannað ágæti sitt en það er skynsamur kostur fyrir þá sem sækja í eithvað sætt. Það er stútfullt af andoxunarefnum og járni. Kostir þess fyrir heilann gera súkkulaðið enn betra – en það hefur örvandi áhrif á heilann.
Súkkulaði daglega
Að borða súkkulaði daglega er talið geta bætt athyglisgáfuna, minni við störf, mál og málnotkun, og hæfni til að vinna hraðar úr upplýsingum.
Þeir sem að rannsókninni standa telja að það að borða súkkulaði (og kakó) geti til langs tíma haft jákvæð áhrif á vitsmunalega getu. En rannsóknin leiddi í ljós að eldri borgarar sem voru í hættu á að missa minnið höfðu mestan ávinning af því að borða súkkulaði.
Auðvitað er ekki verið að tala um að gúffa í sig súkkulaði – en að gæða sér á nokkrum molum á dag gerir heilanum bara gott.
Við látum nú ekki segja okkur það tvisvar!