Döðlukonfekt fyrir jólin er orðin hefð hjá mörgum og hefur verið vinsælt í þó nokkurn tíma.
Við Íslendingar erum agalega veik fyrir lakkrís eins og sjá má á öllu lakkrísæðinu en þetta döðlukonfekt tekur einmitt mið af því.
Lakkríspipar og sterkar djúpur
Döðlugottið er með sterkum djúpum og er alveg svakalega gott. Algjörlega uppáhalds jólagottið mitt.
Og fyrir þá sem hvorki nenna né hafa tíma fyrir flókna konfektgerð þá er þetta auðvitað snilld.
Einfalt og tekur alls ekki mikinn tíma – en alveg ótrúlega gott.
Það sem þarf
400 gr. döðlur
250 gr. smjör
1 poki sterkar djúpur
100 til 120 gr. Rice Krispies
125 gr. púðursykur
lakkríspúður (t.d. Dracula Pulver)
150 gr. súkkulaði (dökkt eða mjólkur)
Aðferð
Saxið djúpurnar, ekki of gróft, setjið til hliðar.
Skerið döðlurnar í litla bita og setjið í skál. Dreifið lakkrísdufti yfir döðlurnar, hversu mikið fer alveg eftir smekk. Ég nota svona tæplega hálfa litla dós.
Bræðið smjör og púðursykur saman í potti þar til sykurinn er vel uppleystur og smjörið hefur blandast vel við.
Bætið döðlunum út í og bræðið þetta allt saman við miðlungshita þar til blandan er orðin eins og karamella.
Setjið þá djúpurnar út í og leyfið súkkulaðinu að bráðna saman við karamelluna.
Takið pottinn af hellunni og kælið blönduna örlítið.
Blandið þá Rice Krispies saman við, gætið þess að smjörið skilji sig ekki frá blöndunni en ef það gerist er gott að hella því smjöri af. Bætið Rice Krispies út í blönduna í skömmtum því þannig er gott að vita hvenær komið er nóg.
Takið lítið kassalaga form og klæðið með bökunarpappír og setjið döðlublönduna í mótið.
Dreifið úr blöndunni í mótið og þrýstið henni laust niður og jafnið að ofan.
Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og hellið síðan yfir döðlublönduna – jafnið það fallega út með sleikju.
Setjið inn í kæli í einn til tvo tíma eða þar til þetta er orðið hart.
Takið þá út, lyftið upp úr bökunarpappírnum og skerið síðan í bita.
Njótið!
Og ef þetta klárast ekki strax geymið þá í kæli.
Jóna Péturs – kokteillinn@gmail.com