Engifer hefur verið notað í gegnum aldirnar við ýmsum líkamlegum kvillum. Það er stútfullt af andoxunarefnum en þau eru talin hafa þessi góðu áhrif á líkamann.
Í dag er afar auðvelt fyrir okkur að nálgast engifer en það fæst nánast í hverri einustu verslun.
Það er auðvelt að bæta engifer inn í fæðuna t.d. með því að setja það í te/heitt vatn og nota það í fiskrétti og súpur, svo fátt eitt sé nefnt.
Hér eru tólf ástæður fyrir því að neyta engifers
1. Engifer styrkir ónæmiskerfið og veitir vörn gegn sýkingum.
2. Engifer getur komið í veg fyrir að bakteríur hreiðri um sig í líkamanum.
3. Engifer er gott við kvefi og sýkingum í hálsi.
4. Engifer getur bætt meltinguna.
5. Engifer er gott við ógleði – og virkar því t.d. vel á morgunógleði.
6. Engifer er gott við flugveiki.
7. Engifer er gott við tíðaverkjum – og það getur dregið úr krömpum.
8. Engifer getur dregið úr bólgum og verkjum í líkamanum.
9. Engifer er talið geta hjálpað til við að veita vörn gegn krabbameini.
10. Engifer getur lækkað kólesterólið og blóðsykurinn.
11. Engifer getur gert heilanum gott og þar með hjálpað gegn Alzheimer.
12. Engifer er talið gott fyrir kynlífið þar sem það kyndir undir áhuga og löngun.