Stundum þarf að sjóða mörg egg í einu og þá getur verið vesen að setja þau í stóran pott og reyna giska á hvenær þau eru öll soðin.
Fullkomin aðferð fyrir betri soðin egg
Þess vegna er þessi aðferð hérna svo hentug. Þótt þetta virki kannski galið í fyrstu þá er þetta alveg stórsniðugt. En það sem er þó best við þessa aðferð er hvað eggin verða mjúk og rjómakennd.
Já eggin verða einhvern veginn betri svona og alveg fullkomlega soðin.
Það eina sem þarf er rakt viskustykki og heitur ofn.
Viskustykki og heitur ofn
Taktu viskustykki og bleyttu það, ágætt að spreyja vatni á það þannig að það verði allt rakt. Ekki rennbleyta stykkið samt.
Leggðu viskustykkið á ofngrind og raðaðu síðan eins mörgum eggjum og þú vilt ofan á stykkið.
Gættu þess að eggin snerti ekki hvort annað. Eggin eiga að liggja á milli rimlanna og stykkið kemur í veg fyrir að rendur eða litur myndist á eggjunum.
Settu eggin inn í 160 gráðu heitan ofn og bakaðu þau í 30 mínútur.
Taktu þau síðan út og gríptu í fjögur horn viskustykkisins til að búa til lítið hreiður fyrir eggin. Lyftu þannig eggjunum upp og settu þau í ískalt vatn.
Og taktu síðan skurnina af þeim og þá ertu með þessi fullkomnu mjúku og rjómakenndu egg.