Hér er tilvalið gotterí til að gæða sér á núna á aðventunni – en þetta eru litlir stökkir súkkulaðibitar.
Þetta er eiginlega eins og sparikex þar sem vöffludeig er uppistaðan í bitunum og síðan að sjálfsögðu allt súkkulaðið.
Ef að tíminn er naumur er auðvitað tilvalið að nota tilbúið vöffludeig úr búðinni.
Það sem þarf
2 egg
¾ bolla sykur
½ bolla hveiti
¼ bolla nýmjólk
¼ bolla bráðið smjör
1 msk vanilludropar
og
1 bolla dökkt súkkulaði
¼ bolla dökkt súkkulaði
Aðferð
Þeytið egg, sykur, mjólk og vanilludropa saman í skál.
Á meðan þið hrærið bætið þá bráðna smjörinu saman við.
Bætið þá hveitinu við og hrærið saman.
(Ef þið notið tilbúið keypt deig þá sleppið þið öllu hér að ofan).
Hitið vöfflujárn og búið til litlar þunnar vöfflur. Setjið lítið á járnið í hvert sinn. Vöfflurnar eiga að vera örþunnar og stökkar.
Látið þær síðan kólna.
Á meðan vöfflurnar kólna bræðið þá 1 bolla af dökka súkkulaðinu yfir vatnsbaði.
Takið súkkulaðið af hitanum þegar það er vel bráðið saman og bætið þá restinni af súkkulaðinu (¼ bolla) saman við.
Látið súkkulaðið aðeins kólna.
Takið vöfflurnar og brjótið þær í litla bita og setjið í stóra skál.
Að því loknu er súkkulaðinu hellt yfir og blandað vel saman við vöfflubitana. Þekjið alla bitana með súkkulaðinu.
Setjið blönduna í lítil form (t.d. múffuform), mótið kúlur eða bita eins og þið viljið hafa þá.
Kælið í 15 til 30 mínútur.
Og njótið!
Sjáðu hér í myndbandinu hvernig þetta er gert
Jóna Péturs – kokteillinn@gmail.com