Laukur er talinn hafa ýmsa kosti – og suma sem maður hefði hreinlega ekki látið sér detta í hug.
Vissulega höfum við margoft heyrt um áhrif hvítlauks á líkamann og „lækningamátt“ hans en ekki vissum við að venjulegur laukur gæti læknað ákveðna kvilla.
Dregið úr kvefi og hita?
Við vissum til dæmis ekki að það að setja lauk við ilina á sér yfir nótt og fara síðan í sokk yfir gæti dregið úr kvefi, flensu og hita.
Virkar svolítið skrýtið, ekki satt?
En þetta er víst engin mýta því þeir sem prófað hafa segja þetta svínvirka.
En af hverju virkar þettta? Jú það er vegna þess að í ilinni eru 7.000 taugaendar sem tengjast hinum ólíku líffærum líkamans.
Þeir sem skoðað hafa þessa aðferð með laukinn telja hann hafa lækningamátt og segja hann einnig geta hjálpað til við sýkingar í þvagblöðru og við eyrnaverk.
Þannig gerirðu þetta
Þá er bara að setja laukinn á réttan stað á ilinni og prófa. Nota má hvort heldur sem er hvítan eða rauðan lauk. Síðan er farið í góða sokka yfir sem halda vel við. Og jafnvel enn betra að fara í tvenn pör – og svo í rúmið.
Gott er að hafa hærra undir fótunum eins og til dæmis kodda. Þegar þú vaknar hefur farið fram hreinsun á blóðinu og laukurinn drepið bakteríur og sýkla.
Það er ekkert að því að prófa þetta!