Hvort sem okkur líkar betur eða verr þá hafa hormónar líkamans mikið að segja um það hvernig okkur líður.
Segja má að þeir stjórni skapi okkar, orku, kynhvöt, meltingu og því hvernig húð okkar lítur út. Þetta er ekki svo lítið.
Hormónaójafnvægi og konur á breytingaskeiði
Þess vegna er eins gott að borða rétt fyrir hormónana. Því ef við borðum ekki rétt getur myndast hormónaójafnvægi og fyrir konur sem eru t.d. á breytingaskeiði getur rangt mataræði gert allt erfiðara en það þarf að vera. Það sem við borðum getur annað hvort hjálpað hormónaframleiðslunni eða valdið ójafnvægi í líkamanum.
Mikilvægt er t.d. að hræðast ekki fitu því fita er eitt það mikilvægasta fyrir hormónajafnvægi líkamans. En fita er reyndar ekki það sama og fita.
Þannig geturðu stuðlað að hormónajafnvægi
Byggðu máltíðir þínar upp á hreinu próteini, góðri fitu, grænmeti ríku af andoxunarefnum og græðandi kryddjurtum.
Veldu eitt úr hverjum flokki til að útbúa á auðveldan hátt máltíð sem hefur áhrif á hormónajafnvægið og um leið húðina.
Prótein (án allra aukaefna)
Kjúklingur og kalkúnn
Nautakjöt
Egg
Fiskur
Hnetur
Baunir
Fræ
Kínóa
Linsubaunir
Góð fita
Kókosolía og annað úr kókoshnetum
Avókadó
Eggjarauða
Hnetur og fræ
Ólífur og ólífuolía
Lýsi
Grænmeti ríkt af andoxunarefnum
Allt dökkgrænt grænmeti, eins og aspas, brokkolí, spínat, grænkál, hvítkál, agúrkur og fleira.
Reyndu líka að velja grænmeti í litum, eins og grænu, rauðu, gulu, papriku í öllum litum, rauðkál, rauðlauk, tómata, gulrætur og svo framvegis.
Auk þess grænmeti ríkt af sterkju, sem er t.d. sætar kartöflur, rauðrófur og þistilhjörtu.
Krydd og jurtir
Hvítlaukur
Engifer
Kanill
Túrmerik
Cayenne pipar
Kúmen
Þetta er nokkuð fjölbreytt – en allar eiga þessar fæðutegundir að hjálpa líkamanum að halda hormónunum í jafnvægi. Eins og áður sagði þá velurðu að minnsta kosti eitt úr hverjum flokki í hverja máltíð.
Miklu máli skiptir að gefa líkamanum það sem hann þarfnast.