Þetta er engin venjulega döðlukaka, en hún er draumi líkust. Stútfull af dökku súkkulaði og döðlum – og ekkert hveiti.
Maður fær hreinlega vatn í munninn að hugsa um hana. Það er nefnilega fátt betra en súkkulaði, döðlur og karamella með sjávarsalti – og þegar þetta allt kemur saman í einni og sömu kökunni þá kætast bragðlaukarnir.
Uppskriftin að þessari himnesku köku er fengin hjá henni Mörthu Stewart.
Það sem þarf
Fyrir döðlumaukið
285 gr döðlur
2/3 bolli bandarískt rúgviskí (Bourbon)
Kakan
170 gr ósaltað smjör
kakó, til að dreifa yfir formið
340 gr dökkt súkkulaði, 70%
6 stór egg, aðskilin
¼ tsk gróft sjávarsalt
½ tsk kanill
¼ bolli sykur
Fyrir karamelluna
1 bolli sykur (og ¼ bolli vatn)
1/3 bolli rjómi
Aðferð
Setjið döðlur og viskí í lítinn pott og látið malla þar til blandan er orðin mjúk og allur vökvi hefur gufað upp.
Takið þá af hitanum, setjið lok á pottinn og látið kólna. Maukið blönduna að lokum í matvinnsluvél – en út úr þessu ætti að koma einn bolli.
Hitið ofninn að 165 gráðum.
Smyrjið kringlótt form (23 cm) með smjöri og klæðið botninn á því með smjörpappír.
Dreifið kakó lauslega yfir formið.
Bræðið smjör og súkkulaði í skál yfir vatnsbaði. Takið af hitanum þegar blandan er orðin mjúk.
Bætið þá 2/3 af döðlumaukinu saman við súkkulaðiblönduna. Látið kólna. Geymið 1/3 af döðlumaukinu fyrir karamelluna.
Hrærið síðan eggjarauðum saman við og bætið einnig salti og kanil út í blönduna.
Þeytið eggjahvítur í annari skál þar til þær eru stífar og bætið síðan sykrinum rólega saman við og þeytið áfram.
Byrjið á því að taka ca 1/3 af stífu eggjahvítunum og hrærið því varlega saman við súkkulaðiblönduna. Takið síðan restina og setjið út í blönduna og blandið varlega saman.
Setjið þá deigið í formið og bakið í ofni í um 30 mínútur. Kakan ætti að vera aðeins sprungin á brúnunum en glansandi í miðjunni.
Látið kökuna kólna alveg. Notið hníf til að renna meðfram hliðum hennar áður en hún er tekin úr forminu.
Karamellan
Setjið sykur og ¼ bolla af vatni í pott og hitið við miðlungshita. Hrærið stöðugt í þar til sykurinn er alveg bráðinn. Látið þá sjóða án þess að hræra þar til þetta er orðið gullinbrúnt, gæti tekið um 10 mínútur. Lyftið og snúið pottinum svo karamellan hreyfist en gætið þess að hún festist ekki við – til þess má nota blautan bursta til að bursta karamelluna niður.
Takið af hitanum og hellið rjómanum afar varlega saman við og hrærið vel í svo þetta blandist saman.
Blandið síðan restinni af döðlumaukinu (1/3 bolla) út í karamelluna.
Ágætt er síðan að láta karamelluna fara í gegnum fínt sigti svo engir kekkir séu í henni.
Látið karamelluna kólna, svo hún þykkni, í svona hálftíma. Gætið þess þó að hún verði ekki of þykk því hún þarf að renna.
Hellið karamellunni að lokum yfir kökuna og dreifið úr henni. Hún má vel leka í hliðunum. Dreifið síðan sjávarsalti yfir.
Njótið þessarar dásemdar með þeyttum rjóma. Gott er að nota heitan hníf til að skera kökuna í sneiðar.
Jóna Péturs – kokteillinn@gmail.com