Þrátt fyrir að við getum aldrei komið alveg í veg fyrir öldrun líkamans er engu að síður ýmislegt sem við getum gert til að hafa áhrif á það.
Hvernig við eldumst og hvað við lifum lengi hefur mikið með lífshætti okkar að gera.
Vissulega eru alltaf undantekningar á því og virðast stundum ólíklegustu þættir og lífshættir einkenna langlíft fólk.
Hér eru sjö þættir sem eru taldir geta hjálpað okkur að hægja á ferlinu
Ólífuolía
Olían er stútfull af andoxunarefnum og hafa rannsóknir sýnt fram á að sá eiginleiki hennar geti komið í veg fyrir sjúkdóma sem gjarnan fylgja hærri aldri. Sýnt þykir t.d. að lág tíðni hjartasjúkdóma og krabbameins á eyjunni Krít megi rekja til einómettaðra fitusýra sem finna má í ólífuolíu.
C-Vítamín
Margar rannsóknir benda til þess að C-vítamín eigi sinn þátt í því að ýta undir endurnýjun frumna. En vítamínið hjálpar til við kollagen framleiðslu sem mýkir og dregur úr hrukkum og fínum línum í húðinni.
Fiskur
Sýnt hefur verið fram á með rannsóknum að þeir einstaklingar sem neyta mikils fisks lifi lengur. Þetta er víst margsannað mál og rannsókn sem framkvæmd var í Bandaríkjunum leiddi t.d. í ljós að dánartíðni karla sem borðuðu fisk tvisvar til þrisvar í viku var 40% lægri en þeirra sem borðuðu sjaldan eða aldrei fisk.
Appelsínugult grænmeti
Gulrætur, grasker og annað appelsínugult grænmeti er mjög ríkt af alpha-carotene. En rannsóknir sýna einmitt fram á að þeir einstaklingar sem mælast með hátt magn alpha-carotene í líkamanum eru ólíklegri en aðrir til að deyja af völdum hjartasjúkdóma eða úr krabbameini.
Granateplasafi
Safinn úr granateplum er sagður geta komið í veg fyrir hjartasjúkdóma og hjálpað til við að losa um streitu. Þá benda rannsóknir líka til að eitt glas af granateplasafa á dag geti minnkað hrukkumyndun húðarinnar – en sérfræðingar telja að safinn hægi á náttúrulegu niðurbroti og veiti vörn gegn veðrun.
Ber
Bláber, brómber, jarðarber og önnur ber eru stútfull af andoxunarefnum. Sýnt þykir að efnið anthocyanins hjálpi til við heilavirkni og minni, og er einnig talið að það geti dregið úr vexti ákveðinna krabbameina. Auk þess hefur það góð áhrif á tónun vöðva – en það er einmitt afar mikilvægt þegar líkaminn eldist.
Grænt te
Mikið hefur verið rætt um heilsufarslegan ávinning þess að drekka grænt te. Sterk andoxunarefnin í því hafa meðal annars góð áhrif á bólgur í líkamanum. En krónískar bólgur eiga víst stóran þátt í sykursýki og öðrum sjúkdómum.
Þá hefur grænt te líka góð áhrif á streitu og getur komið í veg fyrir bólgur sem gjarnan orsakast af of mikilli streitu.