Það er fátt betra í skammdeginu en eitthvað sætt að maula og heitt kakó með. Og nýbakaðir kanilsnúðar eru alveg ómótstæðilega góðir
Hér er uppskrift að einstaklega mjúkum og loftkenndum kanilsnúðum frá henni Svövu á Ljúfmeti og lekkerheit.
Uppskriftin er stór og því upplagt að henda í frystinn til að eiga á aðventunni.
Það sem þarf
1 pakki þurrger
200 g smjör
6 dl mjólk
2 egg
2½ dl sykur
2½ tsk salt
22-24 dl hveiti
Fylling
200 g smjör við stofuhita
2 dl sykur
4 msk kanill
Aðferð
Bræðið smjörið í potti og bætið mjólkinni saman við. Hitið í um 37°.
Blandið öllum hráefnum saman og vinnið saman í deig (ef þið notið hrærivél látið hana þá vinna deigið í 10 mínútur, ef þið hnoðið í höndunum þá a.m.k. 10 mínútur).
Látið deigið hefast undir viskastykki í 30 mínútur.
Á meðan deigið hefast er hráefnum í fyllinguna hrært saman.
Skiptið deiginu í tvennt og fletjið hvorn hluta út í aflanga köku (þannig að deigið verði í laginu eins og skúffukaka).
Smyrjið fyllingunni yfir og brjótið deigið saman eftir langhliðinni.
Skerið í 4-5 cm strimla og skerið síðan upp í hvern strimil þannig að hann líti út eins og buxur. Snúið „buxnaskálmunum“ og vefjið síðan í snúð þannig að endarnir fari undir snúðinn (það má líka einfaldlega rúlla deiginu upp og skera í sneiðar).
Setjið á ofnplötu sem hefur verið klædd með bökunarpappír.
Látið nú snúðana hefast í köldum bakaraofni með pott með sjóðandi vatni undir, í 60-90 mínútur.
Penslið snúðana með eggi og stráið perlusykri yfir.
Bakið við 225° í 8-10 mínútur.
Takið út og njótið!