Þessar girnilegu og gómsætu kúlur eru algjört sælgæti en samt mun hollari en þig grunar. Þær má líka útbúa þær annað hvort vegan eða ekki.
Kúlurnar eru frábær eftirréttur, orkubiti, snarl, sælgæti og bara ef þig langar í eitthvað virkilega gott.
Svo er alveg einstaklega einfalt að útbúa þær – sem okkur finnst auðvitað mikill kostur.
Það sem þarf
1 bolli döðlur
1 bolli Rice Krispies
½ bolli kakó
2-3 msk mjólk að eigin vali (fer eftir því hvort þú vilt hafa þær vegan eða ekki)
Fyrir húðunina
½ bolli dökkir súkkulaðidropar eða súkkulaði í bitum
½ bolli Rice Krispies
Aðferð
Setjið döðlur, Rice Krispies og kakó í matvinnsluvél og maukið vel saman þar til ekki má lengur finna stóra bita.
Blandið mjólkinni saman við, einni skeið í einu – og hrærið saman.
Takið þá blönduna og mótið kúlur úr henni, ca 10 kúlur.
Látið inn í frysti í 10 til 15 mínútur.
Bræðið súkkulaðidropana yfir vatnsbaði.
Setjið Rice Krispies í litla skál.
Takið þá kúlurnar út úr frystinum og veltið einni í einu vel upp úr súkkulaðinu og þekjið alveg.
Veltið þeim síðan strax upp úr Rice Krispies og raðið kúlunum á plötu eða disk.
Ef vill dreifið þá restinni af bráðna súkkulaðinu yfir kúlurnar.
Kælið í 10 til 15 mínútur.
Njótið!
Sjáðu hér í myndbandinu hvernig þetta er gert
Jóna Pétursdóttir – kokteillinn@gmail.com