Þessi súkkulaðiformkaka smellpassar með helgarkaffinu – enda er formkaka ein af þessum kökum sem er fyrir löngu orðin klassík.
Hér er formkakan þó komin í sparibúninginn með suðusúkkulaði og súkkulaðikremi. Getur ekki klikkað.
Uppskriftin er frá henni Svövu á Ljúfmeti og lekkerheit.
Það sem þarf
- ¾ bolli kakó
- 1/3 bolli heitt kaffi
- 1 ¾ bolli hveiti
- 1 tsk lyftiduft
- ½ tsk salt
- 1 bolli smjör við stofuhita
- 1 bolli sykur
- 2 egg
- 2 tsk vanilludropar
- ¼ bolli súrmjólk
- ¾ bolli grófhakkað suðusúkkulaði
Hitið ofninn í 175° og smyrjið formkökuform.
Setjið kakó og kaffi í litla skál og hrærið þar til blandan er slétt.
Hrærið saman, í annarri skál, hveiti, lyftiduft og salt.
Hrærið saman í hrærivél eða með handþeytara smjör og sykur þar til blandan er orðin ljós og létt í sér.
Bætið eggjunum saman við, einu í einu, og hrærið í um mínútu á milli. Hrærið vanilludropum saman við.
Hrærið nú hveitiblöndunni saman við og þar á eftir er kaffiblöndunni hrært varlega saman við.
Hrærið súrmjólkinni saman við og að lokum súkkulaðibitunum.
Setjið deigið í smurt formkökuformið og bakið í um 50-60 mínútur (en fylgist vel með henni í lokin og bakið hana ekki of lengi svo hún verði ekki of þurr)
Látið kökuna kólna áður en kremið er sett yfir.
Súkkulaðikrem
- 1 ½ bolli flórsykur
- 3 msk kakó
- smá salt
- 2 tsk vanilludropar
- 2-4 msk mjólk eða vatn
Sigtið saman flórsykur og kakó í skál.
Bætið salti saman við.
Hrærið vanilludropum og 2 msk af mjólk saman við og bætið 1-2 msk af mjólk við eftir þörfum.
Setjið kremið síðan yfir kökuna.
Og njótið!