Hér er helgarsnarlið komið. Einfalt nachos með nautahakki í ofnskúffu.
Þetta tekur enga stund að útbúa og við lofum að þetta klárast á núll einni – því þetta er svo rosalega gott.
Fyrir marga
Með flögunum er gott að bera fram rauða salsa, guacamole, heita ostasósu og síðan þá sósu sem hér er uppskrift að. Það má líka auðveldlega tvöfalda uppskriftina ef gera á réttinn fyrir marga.
Það er hún Svava á Ljúfmeti og lekkerheit sem skellti í þennan æðislega og einfalda rétt.
Það sem þarf
- nachosflögur
- 500 g nautahakk
- 1 bréf tacokrydd
- 1 krukka tacosósa (230 g)
- jalapenos
- 1 poki rifinn ostur (ca 250 g)
Aðferð
Setjið nachosflögurnar í ofnskúffu með bökunarpappír.
Steikið nautahakkið og kryddið með tacokryddinu.
Hellið tacosósunni yfir og blandið vel saman.
Setjið nautahakkið og jalapenos yfir nachosið og stráið rifnum osti yfir.
Setjið í 200° heitan ofn í 5-10 mínútur, eða þar til osturinn hefur bráðnað.
Köld sósa
- 2 dl sýrður rjómi
- 1 tsk paprikukrydd
- 1/2 tsk chilikrydd
- salt og pipar
- ítalskt salatkrydd
Hrærið sýrðum rjóma, paprikukryddi og chilikryddi saman og smakkið til með salti, pipar og ítölsku salatkryddi. Látið standa í ísskáp í smá stund.
Njótið í góðum hópi!